Vikuspegill: Dómari settur á sakamannabekk

Baltasar Garzón stækka

Baltasar Garzón Reuters

Morgunblaðið Eftir Karl Blöndal

Þegar málflutningur hófst gegn spænska rannsóknardómaranum Baltasar Garzón fyrir hæstarétti Spánar í Madríd á þriðjudag í liðinni viku vegna ásakana um að hann hefði misnotað valdheimildir sínar með því að kafa ofan í glæpi frá tímum borgarastyrjaldarinnar á Spáni og valdatíð Franciscos Francos gerðust þau óvenjulegu tíðindi að saksóknararnir lögðu til að dómstóllinn léti málið niður falla.

Saksóknararnir og verjendur Garzóns kváðust sammála um að hann hefði ekkert gert af sér. Tvenn hægri samtök höfðuðu málið gegn Garzón fyrir að hefja rannsókn á hvarfi 114 þúsund manna í borgarastyrjöldinni 1936 til 1939 og í tíð einræðisherrans. Í ákærunni á hendur Garzón segir að hann hafi gengið of langt því að tveimur árum eftir að Franco féll frá hafi verið gert samkomulag um sakaruppgjöf vegna þessara mála. Það var gert til að auðvelda breytinguna frá einræði til lýðræðis. Garzón heldur því hins vegar fram að umrædd afbrot heyri undir glæpi gegn mannkyni og sakaruppgjöfin nái því ekki til þeirra.

Borgarastyrjöldin er enn viðkvæmt mál á Spáni og menn skiptast í fylkingar eftir því hvort þeir eða forfeður þeirra voru lýðræðissinnar eða Francoistar. Gagnrýnendur Garzóns segja að hann sé að ýfa upp gömul sár og reyna að koma sér í sviðsljós fjölmiðla. Stuðningsmenn hans halda fram að þetta mál og annað, þar sem honum er borið á brýn að hafa gripið til ólöglegra hlerana – með leyfi ríkissaksóknara – í rannsókn á spillingu, auk þess þriðja, sem gæti verið í vændum, séu hefnd fyrir að hann skyldi voga sér að taka á glæpum stjórnar Francos.

Garzón komst fyrst í heimsfréttirnar þegar hann krafðist þess árið 1998 að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Síle, yrði framseldur frá London. Hann reyndi einnig að ná í ráðamenn úr herforingjastjórninni í Argentínu fyrir að hafa varpað stjórnarandstæðingum í sjóinn úr flugvélum. Hann hefur barist gegn eiturlyfjahringum og hryðjuverkamönnum. Hann stefndi Osama bin Laden og rannsakaði meðferð grunaðra hryðjuverkamanna í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Þá stefndi hann George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna þess að hann taldi að Bandaríkjamenn hefðu brotið gegn þjóðarétti þegar þeir réðust inn í Írak. Í upphafi níunda áratugar liðinnar aldar kom hann stjórnarliðum sósíaldemókrata á Spáni í fangelsi fyrir að hafa látið ráða meinta meðhlaupara ETA, skæruliðasamtaka Baska, af dögum.

Hæstiréttur Spánar mun koma saman að nýju 31. janúar til að fjalla um mál Garzóns og mun þá væntanlega koma í ljós hvort því verður vísað frá eða haldið áfram.

Garzón var vikið frá störfum við æðsta glæpadómstól Spánar í maí árið 2010 vegna málsins og starfar nú sem ráðgjafi við alþjóðlega glæpadómstólinn í Haag. „Mér er hulin ráðgáta hvernig dómarar geta vikið starfsbróður úr embætti vegna þess að þeir túlka lög með öðrum hætti en ég,“ sagði Garzón. „Þetta mál snýst ekki um réttlæti heldur um markvissa eyðileggingu á persónu minni.“

Garzón á ekki yfir höfði sér fangelsi vegna málsins, en svo gæti farið að hann yrði útilokaður frá því að stunda lög í allt að 20 ár. „Ég er dómari og mun deyja dómari,“ sagði Garzón í viðtölum eftir að réttarhöldin hófust í vikunni. „Hvort þeir leyfa mér nokkurn tímann framar að starfa sem dómari er annað mál.“

Fjöldagröf frá 1937 opnuð í þorpi á Spáni

Elstu menn í þorpinu Gerena muna enn ópin og skothvellina í kirkjugarðinum í Gerena kvöld eitt árið 1937 þegar borgarastríðið á Spáni stóð sem hæst. Það kvöld skutu liðsmenn Franciscos Francos 17 konur, sem voru skyldar stuðningsmönnum lýðveldissinna, og settu líkin beint í fjöldagröf.

Á mánudag í liðinni viku var hafist handa við að grafa jarðneskar leifar þeirra upp til þess að afkomendur þeirra gætu veitt þeim sómasamlega útför. Fyrir kaldhæðni örlaganna hófust daginn eftir málaferlin á hendur Baltasar Garzon fyrir að hefja rannsókn á glæpum á borð við þann sem framinn var í Gerena fyrir 74 árum.

„Þetta er mótsagnakennt, svo ekki sé meira sagt,“ sagði Lucia Socam, 25 ára gömul, við AFP. Frænka hennar, Granada Hidalgo, var á meðal þeirra, sem grafnar eru í fjöldagröfinni. „Þetta er líka óskiljanlegt. Þeir ætla að rétta yfir Garzón dómara fyrir nákvæmlega þetta, að vilja varpa ljósi á þessa glæpi, sem voru glæpir gegn mannkyni, þannig að fórnarlömbin fengju að njóta réttlætis.“

Fyrir áratug hófu afkomendurnir leit að líkunum. Lög sem sósíalistastjórnin setti 2007 um „sögulegt minni“ hjálpuðu til og sömuleiðis kort sem kom út í fyrra og sýnir 2.000 staði þar sem talið er að fórnarlömb úr borgarastyrjöldinni og einræðistíð Francos séu grafin.

Eins og egg á rakhníf

„Á Spáni eru hinir dauðu meira lifandi en hinir dauðu nokkurs staðar annars staðar – ásjóna þeirra særir eins og egg á rakhníf rakara,“ skrifaði Federico Garcia Lorca, sem var myrtur nokkrum dögum eftir að borgarastríðið braust út á Spáni 1936. Francisco Franco lét banna verk skáldsins og stóð bannið til 1953.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »
Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
Í gær, 14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Í gær, 11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
Í gær, 14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
Í gær, 11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði â...
Fleetwood Bayside 12 fet sem nýtt
Glæsilegt fellihýsi skráð 06/09 lítið notað. 2 gaskútar, sólarsella. grjótgrind,...
Íþróttarimlar óskast
Rimlar (eins og í íþróttahúsum/leikskólum) óskast til kaups, mega vera gamlir og...
PLASTMÓDEL
Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið...
 
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...