Kreppan að lina takið
Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, staðhæfði í sjónvarpsávarpi sem birt var á sex frönskum sjónvarpsstöðvum í kvöld að þær aðgerðir sem gripið hefði verið til vegna fjármálakreppunnar í Evrópu væru farnar að skila árangri.
„Evrópa er ekki lengur á barmi djúprar gjár,“ sagði Sarkozy í ávarpi sínu og bætti því við að fjármálakreppunni væri að linna.
Fyrir tveimur vikum lækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor's lánshæfiseinkunn Frakklands og var það mikið áfall fyrir frönsk stjórnvöld enda var Frakkland áður með hæstu mögulega einkunn, AAA.
Efnahagsástandið hefur versnað til muna í Frakklandi að undanförnu og atvinnuleysi sjaldan eða aldrei verið jafn mikið en um þrjár milljónir Frakka eru án atvinnu.
Sarkozy hefur ekki enn formlega tilkynnt að hann sækist eftir endurkjöri í forsetakosningunum sem fram fara í vor en fastlega er gert ráð fyrir að hann verði í framboði. Hins vegar benda skoðanakannanir til þess að frambjóðandi sósíalista muni hafa betur í kosningunum.
Sarkozy tilkynnti í ávarpi sínu, líkt og fastlega var gert ráð fyrir, að virðisaukaskattur yrði hækkaður um 1,6% en skattahækkunin er ein þeirra aðgerða sem frönsk stjórnvöld grípa til í því skyni að bæta efnahag landsins. Hækkunin tekur hins vegar ekki gildi fyrr en 1. október. „Við vonumst til þess að þetta leiði til aukinnar sölu (áður en skatturinn verður lagður á) og auki hagvöxt,“ sagði Sarkozy í kvöld. Það þýðir að virðisaukaskatturinn verður 21,2% á ýmsar vörur.
Jafnframt greindi Sarkozy frá því að lagður yrði 0,1% skattur á fjármagnsflutninga frá og með ágúst nk.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Erlent Viðbrögðin voru vísitölufall
- Sunnudagur, 29. janúar 2012, Erlent Sarkozy ávarpar frönsku þjóðina
- Þriðjudagur, 6. mars 2012, Erlent Sarkozy styður Obama
- Laugardagur, 31. desember 2011, Erlent Nauðsyn að ná jafnvægi í ríkisfjármálum
- Sunnudagur, 22. apríl 2012, Erlent Hollande 54% - Sarkozy 46%
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































