Santorum ætlar að halda áfram
Rick Santorum, frambjóðandi í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, lýsti því yfir í dag að hann hygðist ekki draga framboð sitt til baka. Annar frambjóðandi í forvalinu, Newt Gingrich, hefur hvatt Santorum til þess að draga framboð sitt til baka.
Santorum mælist nú í þriðja sæti í skoðanakönnunum, langt á eftir frambjóðendunum Mitt Romney og Newt Gingrich. Gingrich hefur ítrekað varað við því að það að tveir harðir íhaldsmenn taki þátt í kosningabaráttunni auki líkurnar á því að Romney, en hann þykir vera nokkuð frjálslyndur í sínum skoðunum, vinni útnefningu Repúblikanaflokksins. Forval Repúblikanaflokksins í Flórída fer fram í dag.
„Mín skilaboð eru þau að allir þeir sem vilja taka þátt í kosningabaráttunni ættu að bjóða sig fram,“ sagði Santorum í samtali við bandarísku fréttastöðina Fox News í dag og bætti við: „Mér finnst að frambjóðendur ættu ekki að hvetja aðra frambjóðendur til þess að víkja til hliðar og draga framboð sín til baka.“
Fyrr í dag hafði Gingrich tjáð fréttamönnum Fox News að mikilvægt væri að einungis einn íhaldsmaður væri í framboði. „Það verður sífellt skýrara að ég er aðalíhaldsmaðurinn í framboði, að ég á besta möguleikann á því að sigra Romney og því lengur sem þessi klofningur á meðal íhaldsmanna varir, þeim mun erfiðara verður það fyrir okkur að stöðva frjálslyndan frambjóðanda sem í ríkisstjóratíð sinni studdi lögleiðingu fóstureyðinga, takmarkanir á skotvopnaeign og skattahækkanir,“ sagði Gingrich í samtali við Fox News.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. mars 2012, Erlent Romney vann í Illinois
- Sunnudagur, 25. mars 2012, Erlent Santorum sigraði í Louisiana
- Miðvikudagur, 14. mars 2012, Erlent Santorum sigrar í Alabama og Mississippi
- Miðvikudagur, 25. apríl 2012, Erlent Romney og Paul einir eftir
- Þriðjudagur, 28. febrúar 2012, Erlent Romney og Santorum hnífjafnir
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































