Kenna hernum um mannfallið
Egyptar eru æfir út í herinn og segja honum um að kenna að 74 létust í uppþoti á fótboltaleikvangi í gær. Margir tróðust undir er þeir reyndu að komast út af vellinum.
Útgönguleiðin var þröng og hliðið læst og breyttist á örskotsstundu í dauðagildru. Mannfjöldinn sem flúði undan æstum aðdáendum annars liðsins, tróðst undir. Aðrir létust er þeir fengu flöskur eða grjót í höfuðið eða af stungusárum. Ekki hefur orðið jafn alvarlegt slys á fótboltaleikvangi í fimmtán ár.
Forsætisráðherra Egyptalands, Kamal el-Ganzouri, hefur leyst upp stjórn knattspyrnusambandsins. Almenningur kennir lögreglu og hernum, sem er við stjórn landsins, um hvernig fór. Þá hefur lögreglustjórinn í borginni Port Said þar sem uppþotið átti sér stað sagt af sér sem og ríkisstjórinn.
Rafmagnið fór af leikvanginum
Og samsæriskenningar hafa margar kviknað. Einhverjir vilja halda því fram að lögreglan hafi leyft slagsmálunum að fara úr böndunum. Hún standi í illdeilum við áhangendur fótboltaliðanna sem margir hverjir hafa tekið virkan þátt í mótmælum í landinu undanfarna mánuði. Þessi hópur átti í átökum við lögregluna fyrir ári og hefur nú barist gegn yfirráðum hersins í landinu.
Mótmælafundir eru skipulögð í landinu í dag þar sem ofbeldinu og aðgerðaleysi lögreglu er mótmælt. Mótmælendurnir hópuðust m.a. út á Tahrir-torgið sem varð miðpunktur mótmælanna í landinu í fyrra.
Fögnuður breyttist í blóðbað
Átökin á fótboltaleikvanginum brutust út um leið og dómarinn hafði flautað leikinn af. Heimaliðið vann og aðdáendur þess réðust á leikmenn og aðdáendur hins liðsins með grjót og hnífa að vopni.
Vitni segja að öryggislögreglan á leikvanginum hafi lengi vel ekkert aðhafst. Fljótlega fór rafmagnið af leikvanginum svo svæðið varð almyrkvað. Því hefur verið haldið fram, en ekki fengist staðfest, að öryggislögreglan hafi tekið rafmagnið af til að freista þess að róa mannskapinn.
Þegar fólkið reyndi svo að komast út kom í ljós að hliðið við aðalútganginn var harðlæst. Margir tróðust undir. „Það var engrar undankomu auðið, annað hvort að vera grýttur eða troðast undir,“ segir maður sem var á vellinum.
Hinn 22 ára gamli Mahmoud Ibrahim missti tvo vini sína í átökunum. Hann segir að þegar rafmagnið var tekið af hafi orðið ljóst að allir myndu sleppa sér.
„Við hlupum niður og reyndum að komast út. Troðningurinn var mikill. Fólk hlóðst upp, undir mér lágu þrír menn. Fólk náði ekki andanum.“
Hann segir atburðinn allan með ólíkindum. „Við áttum að vera að fagna, ekki að drepa fólk.“






































