Kuldakast í Evrópu
Vetrarhörkur geisa nú víða um Evrópu. Alls hafa 163 látist úr kulda að undanförnu. Víða hefur frostmet verið slegið.
Sums staðar hafa þorp og bæir einangrast vegna þessa, vegir, flugsamgöngur og brautarteinar hafa ekki farið varhluta af frostinu. Gasnotkun er mikil þessa dagana, því fólk reynir að hita upp híbýli sín eftir föngum.
Tugþúsundir hafa leitað skjóls í neyðarskýlum í Úkraínu, en þar hafa 63 látist vegna kuldanna. Átta létust síðastliðna nótt úr kulda í Rúmeníu, alls hafa 22 látist þar undanfarna daga vegna veðursins. Sömu sögu er að segja víða um álfuna.
Búist er við afar miklu frosti í um 50 héruðum í Rússlandi næstu daga og hitastigið í borginni Vladivostok er 21 gráðu frost og ísspöng er yfir flóanum sem borgin stendur við. Mikil snjókoma hefur hamlað umferð á helstu þjóðvegum í Volgograd-héraði.
Frost hefur farið niður fyrir 20 gráður í Póllandi og níu manns létust þar af völdum ofkælingar í dag, en hiti fór niður fyrir 32 °C. Flestir þeirra voru heimilislausir og aldraðir. Alls hafa 29 orðið úti í frosthörkunum í Póllandi í þessari viku.
Frost og fannfergi hefur tafið umferð í lofti og á landi á Ítalíu, einkum í miðhluta landsins og norðan til.
Pálmatré á götum Marseilles-borgar í Frakklandi eru þakin snjó og yfirvöld hafa gefið út veðurviðvaranir í 25 héruðum í suðurhluta Frakklands. Talið er að kuldakastið muni vara fram á sunnudag.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 30. janúar 2012, Erlent Kuldaboli bítur fast
- Sunnudagur, 5. febrúar 2012, Erlent 300 hafa látist í kuldakastinu
- Mánudagur, 13. febrúar 2012, Erlent Meira en 600 látnir úr kulda
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Erlent Kuldinn dregur fleiri til dauða
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Erlent Yfir 150 látnir
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































