Ríkir innflytjendur fái forgang
Bresk stjórnvöld eru sökuð um að ætla að leyfa aðeins völdum - og efnuðum, innflytjendum að koma til landsins samkvæmt nýrri stefnu í innflytjendamálum.
Ráðherra innflytjendamála, Damian Green, er í frétt Guardian sagður ætla að tilkynna í dag að stefnan verði sett á að geta valið betur hvaða innflytjendur komi til landsins. Í fréttinni segir að í ræðu ráðherrans í dag muni m.a. koma fram að ekki sé aðeins nauðsynlegt að hafa stjórn á fjölda þeirra sem koma til Bretlands, heldur að „rétta“ fólkið komi, fólk sem geti lagt sitt af mörkum fyrir Bretland, en ekki aðeins notið þess sem landið hefur upp á að bjóða.
Áherslan hefur að sögn Green, verið öll á að takmarka fjölda innflytjenda en nú sé svo komið að nauðsynlegt er að horfa til annarra þátta.
252 þúsund innflytjendur komu til Bretlands árið 2010. „Stóra spurningin núna er hvernig við getum haft hag af innflytjendunum,“ segir Green.
Yfirvöld hafa boðað að í maí verði skýr stefna í innflytjendamálum kynnt. Í henni mun m.a. verða tekið strangara á dvalarleyfum vegna fjölskyldutengsla. Þannig verður ekki lengur sjálfsagt að makar fái dvalarleyfi, tali þeir ekki ensku eða séu ólíklegir til að gera Bretlandi gagn.
Það sem vekur þó mesta athygli er að Green hefur nefnt að gerðar verði ákveðnar kröfur um tekjur innflytjenda. Tekjur skuli vera á bilinu 31-49 þúsund pund á ári, standist innflytjendur ekki áætlanir þar um, fái þeir dvalarleyfi sín ekki endurnýjuð.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 4. apríl 2011, Erlent Bretar laða til sín erlenda fjárfesta
- Miðvikudagur, 23. nóvember 2011, Erlent Deila um innflytjendamál
- Þriðjudagur, 26. júlí 2011, Erlent Til höfuðs fjölmenningarstefnunni
- Föstudagur, 20. apríl 2012, Erlent Björguðu 150 ólöglegum innflytjendum
- Mánudagur, 12. desember 2011, Erlent Hæstiréttur fjallar um innflytjendalög
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































