Þrír yfirheyrðir vegna morðanna í Malmö
Á gamlárskvöld var fimmtán ára drengur drepinn í Malmö. Viku síðar efndu íbúar til mótmæla og kröfðust aðgerða vegna morðöldunnar. mbl.is/reuters
Íbúar í Malmö í Svíþjóð eru óttaslegnir. Ekki að ástæðulausu. Á síðustu mánuðum hafa átta menn verið skotnir til bana í borginni og engar vísbendingar eru um hverjir eða hver er að verki.
Í gær voru þó þrír menn voru í gær yfirheyrðir vegna morðöldunnar og sprengingar við lögreglustöð í miðbænum í fyrrinótt. Yfirvöld hafa tilkynnt að nú verði ekkert til sparað, gríðarlegur kraftur verði settur í rannsókn málsins.
Mennirnir sem yfirheyrðir voru í gær hafa tengst rannsókn málsins um hríð og segir lögreglan að málið hafi þokast í rétta átt með yfirheyrslunum. Hún vildi þó ekki segja til um hvort mennirnir væru beinlínis grunaðir um morðin. Kafað er nú í mörg lögreglumál og menn tengdir glæpasamtökum skoðaðir ofan í kjölinn með tilliti til rannsóknarinnar.
Yfir 70 lögreglumenn taka þátt í aðgerð
Lögregluaðgerðin sem nú hefur verið sett í gang, er kölluð „Fókus á Malmö“ og í henni taka yfir 70 lögreglumenn þátt. Beinist hún m.a. að glæpasamtökum í Svíþjóð.
„Við ætlum að gera glæpamönnum erfitt fyrir og lífið leitt,“ segir lögreglustjórinn Börje Sjöholm. Hann segir aðgerðina einnig fela í sér að koma böndum á smygl sem glæpahóparnir standa fyrir, m.a. á sígarettum og áfengi. Búðir, sem taldar eru selja smyglvarning verða sérstaklega vaktaðar.
„Við verðum að ráðast að rót vandans,“ segir Sjöholm.
Malmö er þriðja stærsta borg Svíþjóðar, á suðvesturhorni Skáns, andspænis Kaupmannahöfn við Ermasundið. Íbúarnir eru aðeins um 270 þúsund talsins og stór hluti íbúa eru innflytjendur.
Stór hópur Íslendinga fluttist búferlum til Malmö í atvinnuleit í lok sjöunda og byrjun áttunda áratugar síðustu aldar, þegar sem mest atvinnuleysi var á Íslandi.
Frétt Dagens Nyheter um morðin í Malmö.
- Þekkir þú til? Býrðu í Malmö? Hafðu þá samband við okkur! Netfang mbl.is er netfrett@mbl.is
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 1. febrúar 2012, Erlent Sprengja sprakk við lögreglustöð
- Laugardagur, 28. janúar 2012, Erlent Skotárás í Malmö
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Erlent Lét fórnarlömbin kalla sig „pabba“
- Miðvikudagur, 1. febrúar 2012, Erlent Hefna sín á lögreglunni
- Föstudagur, 18. maí 2012, Erlent Blaðamaður dæmdur fyrir byssukaup
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi






































