Upplýsingum dóttur Gaddafís hafnað
Alþjóðaglæpadómstóllinn hafnaði í morgun tilboði Aishu, dóttur Múammars Gaddafís heitins, fyrrverandi leiðtoga Líbíu, um að hún gæfi dómstólnum upplýsingar um Seif al-Islam bróður sinn. Hann er enn í haldi þjóðarráðs Líbíu, án samþykkis alþjóðaglæpadómstólsins.
Bróðir Aishu, Seif al-Islam, er eftirlýstur fyrir glæpi gegn mannkyni og er í haldi þjóðarráðs Líbíu. Dómarar alþjóðaglæpadómstólsins sögðu að Aishu hefði gengið það eitt til að komast í samband við bróður sinn, en honum er haldið föngnum í bænum Zintan, sem er suðvestur af Trípólí, höfuðborg Líbíu.
Lögmaður Aishu segir aftur á móti að hún búi yfir upplýsingum sem gætu hjálpað alþjóðaglæpadómstólnum til að átta sig á því hvað þjóðarráðinu gangi til með því að halda bróður hennar föngnum og hvort vilji sé til þess í raun og veru að veita honum réttlát réttarhöld.
Seif al-Islam var tekinn höndum hinn 19. nóvember. Alþjóðaglæpadómstóllinn hefur falast eftir honum í sína vörslu, en því neitar þjóðarráðið og segir réttast að réttað verði yfir honum á líbískri grund. Alþjóðaglæpadómstóllinn gaf út alþjóðlega handtökutilskipun á hendur al-Islam í júní og segist aldrei hafa samþykkt að réttað yrði yfir honum í Líbíu.
Aisha heldur til í Alsír, ásamt bræðrum sínum Mohamed og Hanniba og móður þeirra, Safiyu. Þeim var veitt hæli þar í landi af mannúðarástæðum.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. janúar 2012, Erlent Ekki réttað yfir syni Gaddafis í Líbíu
- Þriðjudagur, 10. apríl 2012, Erlent Ætla að rétta yfir syni Gaddafis
- Sunnudagur, 20. nóvember 2011, Erlent Uppreisnarmenn vilja hafa Saif í haldi
- Sunnudagur, 21. ágúst 2011, Erlent Uppreisnarmenn á Græna torginu
- Föstudagur, 9. september 2011, Erlent Interpol lýsir eftir Gaddafi-feðgum
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































