Kosið um forseta í Finnlandi
Finnar ganga að kjörborðinu í seinni umferð forsetakosninganna nú um helgina. Það sem athygli vekur er að í fyrsta skipti í 30 ár mun það ekki vera jafnaðarmaður sem sest í sæti forseta.
Tveir frambjóðendur eru í seinni umferðinni, annars vegar hægrimaðurinn Sauli Niinistö, sem nú hefur samkvæmt könnunum yfirhöndina, og hins vegar Pekka Haavisto, sem frekar óvænt komst áfram í seinni umferð. Haavisto er samkynhneigður og að auki græningi, sem að mati sumra er ólíkleg blanda til að vinna forsetakosningar í Finnlandi.
Haavisto náði þeim árangri í fyrri umferðinni að sigra fulltrúa mun stærri flokka, þ.á m. fulltrúa jafnaðarmanna.
Haavisto er í hjúskap með Antonio Flores, hárgreiðslumanni frá Ekvador. Parið býr í Helsinki og hefur Florens m.a. verið skotspónn glans- og slúðurtímarita í Finnlandi um tíma.
Margir Finnar bíða spenntir eftir úrslitum helgarinnar, en mótframbjóðandi Haavistos hefur um árabil verið ein af vonarstjörnum Finna og álitinn framtíðarforseti af mörgum á síðustu árum.
Í frétt á The Guardian um málið er m.a. sagt frá útifundi í Helsinki þar sem Haavisto hélt ræðu.
„Antonio yrði frábær forsetafrú,“ sagði Anu Korppi-Koskela, ein stuðningsmanna, og vísaði þar í eiginmann forsetaframbjóðandans.
„Fyrir tólf árum voru Finnar að velta því fyrir sér hvort kona sem væri ógift gæti orðið forseti. Núna er frekar fyndið að hugsa til þess að þetta hafi verið áhyggjuefni. Ég held að eftir 12 ár muni fólk horfa til baka og finnast fyndið að þetta hafi verið áhyggjuefni nú,“ bætir Korppi-Koskela við og vísar til þeirrar umræðu að samkynhneigt par verði æðstráðandi í forsetahöllinni.
Fyrir marga Finna er kynhneigð Haavistos ekki vandamál, þeir eru frekar forvitnir um hana. Haavisto er nýr valkostur fyrir marga kjósendur. Þá höfðar hann vel til ungra kjósenda, sem fram til þessa hefur þeir þótt sniðgengnir af öðrum flokkum.
Talsverðar hræringar eru í finnskum stjórnmálum, sem endurspeglast m.a. í því að í þingkosningunum í fyrra varð hægriflokkurinn „Sannir Finnar“ þriðji stærsti stjórnmálaflokkurinn. Flokkurinn berst gegn veru Finnlands í ESB.
„Ef þú segir að forsetinn megi vera samkynhneigður þýðir það að nú sé rétti tíminn. Það myndi láta Finnland líta út eins og háþróað nútímaþjóðfélag,“ segir hin 29 ára Merje Nevala, ein af stuðningsmönnum Haavistos.
Haavisto á ennþá langt í land, enda hefur andstæðingur hans notið mikilla vinsælda.
Þá eru báðir aðilar taldir hafa sambærilega stefnu í utanríkismálum. þeir eru báðir hlynntir Evrópusambandinu og styðja aðgerðir til stuðnings evrunni.



































