Evrópuríki grípi til aðgerða

Að minnsta kosti 56 manns létu lífið í mótmælunum í Sýrlandi um helgina, helmingur þeirra voru óbreyttir borgarar. Evrópuríki hyggjast herða refsiaðgerðir gagnvart Sýrlendingum eftir að Rússar og Kínverjar höfnuðu tillögu um að aðgerðir sýrlenskra stjórnvalda yrðu  fordæmdar.

„Við munum reyna að auka á alþjóðlegan þrýsting og sá tími mun koma þegar stjórn Assads áttar sig á því að hún er algerlega einangruð og getur ekki haldið svona áfram,“ sagði Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakklands, í dag.

Juppe sagði ennfremur að Frakkar myndu aðstoða sýrlenska mótmælendur við að skipuleggja hreyfingu sína og að stofnaður yrði alþjóðlegur vinnuhópur um málefni Sýrlands.

Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, átti hugmyndina að vinnuhópnum og hann mun á næstu dögum stefna þeim saman sem telja núverandi ástand í Sýrlandi með öllu ólíðandi.

Juppe sagði afstöðu Kínverja og Rússa „siðferðilegan blett“ á Sameinuðu þjóðunum og sagði að Frakkar væru að íhuga tillögu Túnis um að öll lönd vísi sýrlenskum sendiherrum og sendifulltrúum úr landi.

Evrópusambandið hefur nú þegar gripið til nokkurra refsiaðgerða gegn ríkisstjórn Bashar al-Assads, forseta Sýrlands. Eignir sýrlenskra fyrirtækja og einstaklinga, sem tengjast ríkisstjórn landsins, hafa verið frystar í Evrópu. Einnig hefur verið sett ferðabann til Sýrlands.

Einnig verður innflutningur á hráolíu frá Sýrlandi brátt bannaður.

Gerard Longuet, varnarmálaráðherra Frakka, segir að Evrópubúum beri skylda til að sýna að þeir samþykki ekki það sem fram fer í Sýrlandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »
Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Breivik ætlar ekki að áfrýja

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik með lögmönnum sínum þeim Geir Lippestad og Vibeke Hein Bæra.
Í gær, 14:49 Norski fjöldamorðinginn Anders Behrin Breivik bað um orðið í lok réttarhaldanna yfir honum í dag. Hann sneri sér til dómaranna og sagðist hafa íhugað að áfrýja ef hann yrði fundinn sekur, en síðan komist að þeirri niðurstöðu að gera það ekki. Meira »

Lögregla stöðvar mómæli í Bakú

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.
Í gær, 11:44 Lögreglan í Bakú stöðvaði fyrr í dag mótmæli við höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í landinu, framkvæmdaaðila Evróvisjón 2012. Þetta er ekki i í fyrsta skipti sem að stjórnvöldstöðva mótmæli á þessum slóðum í vikunni en mótmæli voru einnig stöðvuð mánudag, á meðan fyrri forkeppni Evróvisjón fór fram. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz

Etan Patz hvarf fyrir 33 árum.
Í gær, 14:02 Lögreglan í New York segist hafa mann í haldi sem er grunaður að tengjast hvarfi Etan Patz árið 1979. Patz var sex ára gamall þegar hann hvarf fyrir 33 árum. Meira »

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.
Í gær, 11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kæliklefar. Frystiklefar. Lausfrystar
Kæli- og frystiklefar í öllum stærðum. Skammur afhendingartími. Hægt er að fá k...
Peugeot 206 XR Présence árgerð 2007
Til sölu mjög góður og fallegur Peugeot árg. 2007 ekinn 75.000 km. Beinskiptur. ...
WESTERN CANADA EXCHANGE
WESTERN CANADA EXCHANGE I live near the Rocky Mountains in western Canada and am...
TOYOTA PRIUS 7/2008 EKINN 64000 KM
Ti sölu mjög gott eintak af Prius,einn eigandi 100% þjónusta áett verð 2.790.000...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...