Ráðherra sakaður um kynþáttahyggju
Claude Gueant, innanríkismálaráðherra Frakklands (vinstri) ásamt Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands (hægri). Reuters
Claude Gueant, innanríkismálaráðherra Frakklands, lýsti því yfir í dag að hann stæði við ummæli sín frá því gær þess efnis að ekki væru allir menningarheimar jafnir. Gueant hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir ummælin sem þykja bera vott um kynþáttahyggju.
Gueant, sem sér í embætti sínu m.a. um málefni innflytjenda, hefur getið sér orð sem harðlínumaður í þessum málaflokki.
„Þvert á það sem hlutlægar kenningar vinstrimanna segja, þá eru í okkar huga ekki allir menningarheimar jafn merkilegir,“ sagði Gueant á samkomu sem haldin var af þjóðernissinnuðum stúdentum og bætti við „Þeir menningarheimar sem standa vörð um mannkyn virðast í okkar huga vera háþróaðri en þeir sem gera ekki slíkt hið sama.“
Gueant lagði í ræðu sinni einnig áherslu á að nauðsynlegt væri að standa vörð um vestræna menningu.
„Ég sé ekki eftir ummælunum,“ sagði Gueant við fjölmiðla í dag og ásakaði um leið gagnrýnendur sína um að hafa tekið ummælin úr samhengi.
Talið er að ræða Gueant sé hluti af tilraunum Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, til þess að hrífa stuðningsmenn Þjóðfylkingarinnar, öfgafulls þjóðernishyggjuflokks. Stutt er í frönsku forsetakosningarnar en þær verða haldnar í tveimur lotum í apríl og maí næstkomandi.
Að sögn Harlem Desir, eins af æðstu forsvarsmönnum Franska sósíalistaflokksins, eru ummælin dæmi um aumkunarverða ögrun af hálfu ráðherrans.
Bernard Cazeneuve, talsmaður Francois Hollande, forsetaframbjóðanda Sósíalistaflokksins, fordæmdi einnig ummælin og sagði þau vera niðurlægjandi og líkleg til að valda sundrung. Segolene Royal, fyrrum forsetaframbjóðandi Sósíalistaflokksins, tók í sama streng og kallaði ummælin hættuleg.
Stuðningsmenn Sarkozy hafa hinsvegar komið Gueant til varnar. Þannig sagði Gerard Longuet við fjölmiðla að það væri almenn skynsemi að halda því fram að hægt væri að meta mikilvægi menningarheima út frá gildum á borð við virðingu fyrir einstaklingsfrelsi, ofbeldisleysi og afnámi dauðarefsinga.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. mars 2012, Erlent Ekki víst að Merah sé á lífi
- Laugardagur, 3. desember 2011, Erlent Strauss-Kahn stöðvaður í alræmdum garði
- Sunnudagur, 18. september 2011, Erlent Samþykkti viðskipti við Gaddafi
- Miðvikudagur, 21. mars 2012, Erlent Myrti börnin því hann fann engan hermann
- Þriðjudagur, 20. mars 2012, Erlent Var með myndavél á sér
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































