Nauðga og misþyrma lesbíum
Likamva Cekiso var að taka til í herbergi frænda síns er hann kom inn, læsti hurðinni og hækkaði í útvarpinu. Svo réðst hann á hana í því skyni að „leiðrétta“ kynhneigð hennar.
„Ég hafði opinberað samkynhneigð mína, þess vegna nauðgaði hann mér,“ segir hin 29 ára gamla Cekiso. „Hann sagði að kona ætti að eiga mök við karla, ekki konur.“
Cekiso er ein þeirra kvenna sem hafa orðið fyrir ofbeldi í heimalandinu Suður-Afríku fyrir það eitt að vera samkynhneigð. Lesbíum er nauðgað, þeim hótað og þær gerðar útlægar fyrir kynhneigð sína.
„Á mig hefur fjórum sinnum verið ráðist,“ segir önnur kona við fréttastofuna AFP. Hún þurfti að dvelja á sjúkrahúsi í mánuð, eftir að hafa orðið fyrir grófri líkamsárás.
„Á meðan þeir börðu mig sögðu þeir að ég yrði að breytast, ég væri stúlka og ætti því ekki að fara á stefnumót með öðrum stúlkum. Þeir vildu kenna mér lexíu. Ég ætti skilið að vera lamin og nauðgað.“
Konan, Lindeka Stulo, var ekki nauðgað en segir hættuna stöðugt vera til staðar. „Það er alltaf verið að vara mig við: Þér verður nauðgað, þér verður nauðgað,“ segir Stulo en lík vinkonu hennar, sem var lesbía, fannst nýverið í ruslagámi.
Segja lesbíur stela konum frá körlum
Lesbíur eru af ofbeldismönnunum álitnar hreinar meyjar og því sérstaklega eftirsóknarverð bráð. Þá finnst einhverjum þeirra að lesbíur „steli“ konum frá gagnkynhneigðum körlum.
Réttindi samkynhneigðra eru tryggð með lögum í Suður-Afríku og árið 2006 voru hjónabönd samkynhneigðra lögleidd. Þar með varð landið það fyrsta í Afríku til að lögfesta slíkt.
En í mörgum hverfum borganna og í sveitum landsins er íhaldssemin enn við völd. Víða eru hefðir og venjur þjóðflokka enn í heiðri hafðar og samkynhneigð ekki viðurkennd.
Fjölskyldur lesbía afneita þeim og lögreglan, sem á að vernda þær, hlær upp í opið geðið á þeim þegar þær leggja fram kæru.
Hatursglæpir eiga ekki að viðgangast
Nú hafa stjórnvöld í Suður-Afríku sett á stofn aðgerðarhóp sem á að skoða aðstæður í þeim hverfum þar sem glæpir gegn samkynhneigðum eru algengastir. Talsmaður dómsmálaráðuneytisins segir nauðsynlegt að uppræta þessa „grimmdarlegu glæpi“.
„Við tökum þetta mjög alvarlega. Hatursglæpir sem þessir eiga ekki að viðgangast.“ Hann segir yfirvöld gera sér grein fyrir að stofnanir ríkisins, og á þar m.a. við lögregluna, eru hluti af vandamálinu.
Hópurinn mun meðal annars hafa það hlutverk að reyna að uppfræða almenning og koma af stað hugarfarsbreytingu.
Konurnar segjast sjálfar vera mjög varar um sig. Þær fari ekki út seint á kvöldin og sumar hverjar eru í samböndum við karla, til þess eins að þóknast fjölskyldum sínum.
Og sögurnar eru því miður óteljandi. Einni konu var nauðgað af föður sínum sem vildi „leiðrétta“ kynhneigð hennar.
Nauðgun á 9 mínútna fresti
Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja löggjöfina í Suður-Afríku einskis nýta á meðan ráðist sé ítrekað á lesbíur og tvíkynhneigðar konur. Tölur um fjölda árása sem tengja má beinlínis við kynhneigð fórnarlambsins, liggja ekki fyrir en samkvæmt tölum frá lögreglunni var nauðgun framin á níu mínútna fresti að meðaltali á árunum 2010-2011.
Í síðustu viku voru fjórir karlar dæmdir í 18 ára fangelsi fyrir að myrða lesbíur í Höfðaborg. Þykir sá dómur vísbending um að yfirvöld ætli að taka harðar á hatursglæpum í framtíðinni.





































