Danskar barnafjölskyldur á götunni
Sífellt fleiri Danir missa leigusamninga á íbúðarhúsnæði vegna þess að þeir standa ekki í skilum. Barnafjölskyldum í þessum hópi fjölgar, en fimmta hver fjölskylda, sem stendur í þessum sporum, er barnafjölskylda.
Þetta kemur fram í tölum frá húsnæðisfélaginu KAB, sem er stærsta húsnæðisfélag landsins. Þar segir að 25% fleirum hafi verið sagt upp húsnæði vegna vanskila í fyrra en árið þar á undan. Húsnæðisfélagið Boligselskabet Danmark hefur sömu sögu að segja.
Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn segja að þar hafi aukningin verið 10%.
Fimmta hver fjölskylda, sem sagt er upp húsnæði, er barnafjölskylda. Margar þeirra setjast að í hjálparmiðstöðvum, hjá vinum eða ættingjum.
Forstjóri KAB, Jesper Nygård, segir þessa þróun ógnvænlega. „Fyrir tíu árum sögðum við upp einum eða tveimur í viku hverri. Núna eru það tveir daglega, bara í húsnæðisfélaginu okkar. Fyrir tíu árum heyrði það til undantekninga ef börn voru í þessum aðstæðum, en nú eru mörg dæmi þess.“
Nygård telur þessa þróun beina afleiðingu af vaxandi fátækt í landinu. Atvinnuleysi jókst á síðasta ári og bætur til þeirra verst stöddu lækkuðu.
Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra landsins og formaður Jafnaðarmannaflokksins, lofaði barnafjölskyldum bættum kjörum í kosningabaráttunni í fyrra. Þar sagði hún meðal annars að sveitarfélögunum bæri skylda til að útvega barnafjölskyldum húsnæði.
Carsten Hansen, sem er ráðherra búsetumála, segir að fátækt sé aðalorsök þessa vanda. Hann segir ennfremur að margir fái bæturnar greiddar fyrsta dag hvers mánaðar, en rukkað sé fyrir húsaleigu 3. dag mánaðarins. Samræma þurfi dagsetningarnar, því brögð séu að því að fólk sé búið að eyða öllum bótunum á þessum tveimur dögum og eigi því ekki fyrir húsaleigu.
Erlent »
- Breivik ætlar ekki að áfrýja
- Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz
-
Lögregla stöðvar mómæli í Bakú
- Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik
- Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna
- Tafir á flugi í Portúgal
- Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar
- Harðir eftirskjálftar á Ítalíu
- Egyptar kjósa sér forseta
- Víðtækt verkfall í Noregi
- 400 handteknir í mótmælum
- Fellibylurinn Bud nálgast land
- Systur handteknar fyrir barnaníð
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 17. ágúst 2011, Erlent Fremja sjálfsvíg á lestarteinum
- Sunnudagur, 25. mars 2012, Erlent Fjöldamorðinginn: Frá smáþjófnaði í heilagt stríð
- Miðvikudagur, 23. nóvember 2011, Erlent Jöfn hjúskaparlög í Danmörku
- Laugardagur, 5. maí 2012, Erlent Hollande nýtur óvinsælda Sarkozy
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































