Grafa fjöldagrafir í skjóli myrkurs
Sýrlenski herinn hélt áfram loftárásum á borgina Homs í morgun. Utanríkisráðherra Rússlands er væntanlegur til Damaskus í dag til viðræðna við stjórnvöld til að leita leiða til að koma á friði. Uppreisnarmenn segja að minnst 100 hafi fallið í gær, mánudag.
Fréttaritari BBC í Homs segir að borgarbúar óttist að hersveitir muni gera innrás á jörðu niðri. Sprengjuárásir hófust þar að nýju um klukkan 4 í nótt að íslenskum tíma og hafa staðið sleitulaust síðan.
Rússar og Kínverjar hafa verið gagnrýndir á alþjóðavettvangi fyrir að beita neitunarvaldi gegn tillögu um að Sameinuðu þjóðirnar styðji Arababandalagið til að ná fram friði. Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, sem fundar með sýrlenskum stjórnvöldum í dag, segir að viðbrögð Vesturlanda við ákvörðun Rússlands jaðri við „móðursýki“.
BBC hefur eftir talskonu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna að Bandaríkjastjórn voni og vænti þess að Lavrov nýti tækifærið í dag til að gera stjórn Bashars al-Assads Sýrlandsforseta það alveg ljóst hversu einangruð hún er og hvetji Assad og hans menn til að nýta sér áætlun Arababandalagsins og undirbúa stjórnarskipti.
Fréttaritari BBC er einn fárra erlendra fréttamanna í Homs. Hann segir að borgarbúar grafi hina látnu í fjöldagröfum í skjóli nætur, en verði samt sem áður fyrir skothríð á meðan. Óstaðfestar fregnir herma að hersveitir Assad séu nú í innan við 1 km fjarlægð frá þeim borgarhluta sem verst hefur orðið úti í sprengingunum. Borgarbúar óttast því innrás.
Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hefur sagt að vaxandi ofbeldi í Sýrlandi sé með öllu óviðunandi ástand fyrir mannkynið.
Erlent »
- Breivik ætlar ekki að áfrýja
- Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz
-
Lögregla stöðvar mómæli í Bakú
- Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik
- Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna
- Tafir á flugi í Portúgal
- Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar
- Harðir eftirskjálftar á Ítalíu
- Egyptar kjósa sér forseta
- Víðtækt verkfall í Noregi
- 400 handteknir í mótmælum
- Fellibylurinn Bud nálgast land
- Systur handteknar fyrir barnaníð
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 4. febrúar 2012, Erlent ESB hlutast til um Sýrland
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Erlent Stál í stál í Sýrlandi
- Þriðjudagur, 21. febrúar 2012, Erlent Sprengjur falla á Homs
- Þriðjudagur, 17. apríl 2012, Erlent Ófriðurinn heldur áfram
- Fimmtudagur, 5. apríl 2012, Erlent Vill pressa á uppreisnarmenn
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































