Evróvisjón í skugga kúgunar?

Margir hafa áhyggjur af stöðu mannréttindamála í Aserbaídsjan. stækka

Margir hafa áhyggjur af stöðu mannréttindamála í Aserbaídsjan. www,mbl.is

Senn líður að hinni árlegu Evróvisjónkeppni. Nokkur styr stendur um keppnina í ár, sem verður haldin í Aserbaídsjan, en þar þykir pottur víða brotinn í mannréttindamálum. Mannréttindasamtök segja tjáningar- og félagafrelsi takmarkað og samkynhneigðir Aserar sæta áreitni lögreglu og stjórnvalda.

Aserbaídsjan er ekki í fréttum hér á landi á hverjum degi, en söngvakeppnin hefur beint athygli Evrópuþjóða að mannréttindabrotum og kúgun ríkisstjórnar Aserbaídsjans sem hefur notað stórauknar olíutekjur sínar til að herða tökin á landinu. En hvar er Aserbaídsjan, eigum við að láta mannréttindabrot hafa áhrif á þátttöku okkar í keppni á borð við Evróvisjón og í hverju felast þessi brot?

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan. www .eurovision.tv

Auðugt að olíu og fyrrverandi sovétlýðveldi

Aserbaídsjan var áður eitt af lýðveldum Sovétríkjanna, en hlaut sjálfstæði árið 1991 þegar þau liðuðust í sundur. Landið er í suðausturhluta Kákasusfjalla, við Kaspíahaf á mörkum Evrópu og Asíu og á landamæri að Íran, Armeníu, Georgíu og Rússlandi. Nokkurn tíma hefur tekið fyrir landið að rétta úr kútnum eftir sovétstjórnina, en undanfarin ár hafa orðið miklar efnahagsframfarir í landinu og Alþjóðabankinn útnefndi það sem það land sem hefði tekið mestum efnahagsframförum árið 2008.

Íbúar Aserbaídsjans eru rúmar níu milljónir og flestir þeirra múslímar. Landið háði stríð við Armeníu um héraðið Nagorno-Karabak eftir hrun Sovétríkjanna og um 30.000 manns lágu í valnum. Forseti landsins heitir Ilham Aliyev og hefur hann verið í embætti frá árinu 2003. Hann tók við af föður sínum, sem var forseti næstu tíu árin á undan. Þegar Aliyev var kosinn sögðu fulltrúar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE, að kosningarnar hefðu síður en svo verið lýðræðislegar. Nokkuð var um mótmæli í landinu í kjölfar kosninganna og beitti lögregla þá valdi til að kveða þau niður.

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan.

Frá Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan. www .eurovision.tv

Aserbaídsjan er auðugt að olíu og sömdu ráðamenn landsins við olíurisann BP um að leggja olíuleiðslu frá Kaspíahafi til Evrópuríkja. Mikill hagvöxtur hefur því verið í Aserbaídsjan síðustu árin. 

Um leið og ljóst var að Aserar hefðu borið sigur úr býtum í Evróvisjón heyrðust gagnrýnisraddir um að keppnin skyldi haldin í landi, þar sem ástand mannréttindamála er svo bágborið. Ekki dró úr gagnrýnisröddunum þegar fregnir bárust af því að íbúar borgarinnar Bakú hefðu þurft að yfirgefa heimili sín til að rýma svæði fyrir Kristalshöllina, sem á að hýsa keppnina. Fólkinu voru boðnar bætur fyrir hús sín, en þær munu ekki duga til að koma öðru þaki yfir höfuðið.

Ógeðslegt að vera glamúrös í Kristalshöll

Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er einn þeirra sem hefur tjáð sig um ástand mannréttindamála í Aserbaídsjan. „Afstaða mín er einföld. Ísland á að draga sig útúr Eurovision keppninni í Bakú í Aserbaídsjan. Mannréttindi í fyrsta sæti - Eurovision í öðru sæti. Það er gaman að vera glamúrös - en það er ógeðsleg tilhugsun að vera glamúrös í Kristalshöll sem er byggð á jafn ljótum grunni og með jafn viðbjóðslegri forsögu,“ segir Páll Óskar á Facebooksíðu sinni.

Páll Magnússon útvarpsstjóri var spurður í síðdegisútvarpi Rásar tvö í dag hvort hann hygðist aflýsa þátttöku Íslands í keppninni. Þar sagðist Páll ekki hafa tekið neina ákvörðun um það, en benti á að ef Evróvisjón væri ekki haldin í landinu, þá hefði aldrei verið vakin jafn mikil athygli á stöðu mannréttindamála.

Páll Óskar skoraði þar á Páll Magnússon að aflýsa þátttöku Íslands í keppninni. 

Hafa áhyggjur af tjáningarfrelsi og félagafrelsi

Landið er álitið á meðal spilltustu ríkja heims og er í 143. sæti á lista yfir þau lönd þar sem gagnsæi er mest í stjórnarháttum. Landið þykir því meðal spilltustu ríkja heims, þar sem stjórnarhættir eru ógagnsærri en í Úganda, Íran, Sýrlandi og Pakistan, svo dæmi séu tekin.

„Helstu áhyggjuefni Amnesty varðandi Aserbaídsjan varða tjáningarfrelsi og félagafrelsi,“ segir Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty á Íslandi. „Fólk á á hættu að vera varpað í fangelsi ef það gagnrýnir yfirvöld.“ Jóhanna nefnir sem dæmi að samtökin séu nú að vinna fyrir 16 samviskufanga, sem voru handteknir vegna mótmæla fyrir tæpu ári.

Þá gengu hundruð mótmælenda um götur höfuðborgarinnar Bakú í mars og apríl 2011 og kröfðust lýðræðislegra umbóta og aukinnar virðingar við mannréttindi. Yfirvöld svöruðu með því að banna mótmæli og áreita og handtaka bloggara og baráttufólk.

„Það er til dæmis mjög erfitt að fá að skrá óháð félagasamtök í Aserbaídsjan og sömuleiðis erfitt fyrir trúarhópa að fá að skrá sig. Það er mikið eftirlit með félagasamtökum í landinu,“ segir Jóhanna.

Hún segir að núna í aðdraganda Evróvisjón hafi verið sett í gang herferð í landinu við að fegra höfuðborgina Bakú. Íbúðarhús hafi verið rifin, meðal annars til að rýma fyrir glæsihöll sem byggð er til að hægt verði að halda keppnina og dæmi um að fólk hafi verið borið út af heimilum sínum. „Það skýtur skökku við að þeir séu að byggja glæsihöll til að leyfa röddum Evrópu að hljóma, en kæfa raddir eigin borgara,“ segir Jóhanna.

Dregur athygli að mannréttindamálum

Yfirvöld í Aserbajdsjan eru staðráðin í að bæta ímynd sína með því að halda risavaxinn skemmtiviðburð á borð við Evróvisjón. „En þau átta sig ekki á því að keppnin dregur athygli að stöðu mannréttindamála í landinu,“ segir Giorgi Gogia, sem starfar með mannréttindasamtökunum Human Rights Watch, í samtali við AFP-fréttastofuna.

„Þessi viðburður mun hafa mjög jákvæð áhrif á hugmyndir fólks um landið,“ sagði Abulfas Garayev, menningar- og ferðamálaráherra landsins, við AFP-fréttastofuna. Yfirvöld neita því að hafa borið fólk af heimilum sínum til að rýma fyrir Kristalshöllinni. Þau segja að framkvæmdirnar hefðu hvort sem er verið fyrirhugaðar og að þær tengist Evróvisjón ekki neitt.

Samkynhneigðir sæta ofsóknum og eru þaggaðir niður

Samtök samkynhneigðra hafa áhyggjur af mannréttindabrotum gegn hommum og lesbíum í Aserbaídsjan. „Staða samkynhneigðra er mjög bágborin víða í Austur-Evrópu,“ segir Árni Grétar Jóhannsson, framkvæmdastjóri samtakanna '78. „Þetta er líklega búið að vera svona lengi, en núna fær Aserbaídsjan kastljósið á sig vegna Evróvisjón og þess vegna verður þetta allt í einu svona opinbert. Annars held ég að almenn staða mannréttindamála sé víða mjög slæm í löndum í þessum heimshluta, ekki bara þarna, því miður.“

Að sögn Árna eru að öllum líkindum engin opinber samtök hinsegin fólks í Aserbaídsjan. Þar sé mikil þöggun og samkynhneigð ekki viðurkennd. „Þetta er talið með frjálslyndustu múslímalöndunum, en samt er fólk í felum með þetta. En það er ekki ólöglegt að vera hinsegin, það var tekið út árið 2001. “

Árni segir að samkynhneigðir Aserar verði fyrir ofbeldi og áreiti af hendi lögreglu og yfirvalda. Hann segir þetta að mörgu leyti sérstætt fyrir Evrópuland, en að vísu sé ástandið víða erfitt í mörgum löndum Austur-Evrópu og fyrrverandi austantjaldslöndum, þar sem tjáningarfrelsi hinsegin fólks sé takmarkað og því meinað að halda hinsegin göngur.

Hann segir í ljósi þessa ankannalegt að yfirvöld í Aserbaídsjan skuli hafa séð sérstaka ástæðu til að taka fram að samkynhneigðir þyrftu ekki að óttast um sinn hag ef þeir kæmu til landsins til að fylgjast með Evróvisjón. „En það er tekið fram að þetta gildi bara um gesti landsins, ekki heimafólk,“ segir Árni.

Merki Evróvisjón 2012.

Merki Evróvisjón 2012. www .eurovision.tv

Bygging Kristalshallarinnar umdeildu.

Bygging Kristalshallarinnar umdeildu. www .eurovision.tv

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd af flutningaskipinu Rena frá því í apríl

Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi

07:09 Skipstjóri og stýrimaður flutningaskipsins Rena, sem strandaði á Astrolabe-rifi við Nýja-Sjáland 5. október í fyrra, voru í dag dæmdir í sjö mánaða fangelsi hvor. Meira »
Mohammed Mursi

Bandalag múslíma lýsir yfir sigri

06:36 Muhammed Mursi, forsetaefni Bræðralags múslíma, er með flest atkvæði þegar búið er að telja um helming atkvæða í forsetakosningunum sem fram fóru í Egyptalandi í gær og fyrradag. Meira »

Hollande í Afganistan

Forseti Frakklands, François Hollande
06:23 Forseti Frakklands, François Hollande, kom í óvænta heimsókn til Afganistan, í dag. Þar lýsti hann því yfir að brottför fransks herliðs frá landinu yrði í samstarfi við samherja Frakka innan Atlantshafsbandalagsins. Meira »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Jarðskjálfti í Christchurch

Frá stóra skjálftanum í fyrra
06:06 Íbúum í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi var brugðið í nótt þegar jarðskjálfti sem mældist 4,7 stig reið yfir borgina. Í fyrra létust 185 í hörðum jarðskjálfta þar. Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.
Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sjálfskipt Nissan Almera 2001
Til sölu Nissan Almera Luxury árg. 2001, ekin 167 þús., skoðaður 2013, stgr.verð...
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
Fallegur Nuddbekkur Topp - Gæði Verð : 62.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur.5 ára ábyrgð
Ferðanuddbekkur www.isholf.is/eirikurs/nuddbord.html s. 8626194. Falleg - Sterk ...
Fjarnámskeið á tilboði, aðeins 9.900 kr.
Lærðu ljósmyndun á Netinu. Á fjarnamskeid.is er hægt að læra allt um ljósmyndun,...
 
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...