Ástralskir neita leynifangelsi
Varnarmálaráðherrar Bretlands, Ástralíu og Bandaríkjanna. Frá vinstri: Philip Hammond, varnarmálaráðherra Bretlands, Stephen Smith, varnarmálaráðherra Ástralíu og Leon Panetta, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Reuters
Ástralir neita ásökunum þess efnis að þeir hafi átt mikilvæga aðild að leynifangelsi í eyðimörk í Írak, þar sem mönnum var haldið föngnum án dóms og laga. Breska dagblaðið The Guardian fullyrðir að samkvæmt bandarískum herskjölum hafi úrvalssveit ástralskra hermanna verið hluti af verkefni sem nefndist H1 árið 2003.
Að auki hafi sérveit breska hersins átt aðild að verkefninu sem var undir stjórn Bandaríkjamanna.
Slík leynifangelsi eru kölluð „svartir staðir“ og vísar það til þeirrar starfsemi sem þar fer fram og að þau eru á vitneskju fárra. Frægasti svarti staðurinn er líklega fangelsi Bandaríkjamanna í Abu Ghraib í Bagdad í Írak. Fáir vissu af tilvist þess, fyrr en myndir láku út, sem sýndu illa meðferð Bandaríkjamanna á íröskum föngum þar.
Alexander Downer, sem var utanríkisráðherra Ástralíu á þessum tíma, neitar þessu. „Ég tel að þetta sé hreinasti þvættingur,“ sagði hann í viðtali við ástralska útvarpsstöð. „Ef ég man rétt, þá héldum við engum mönnum föngnum, en við létum þá í hendur annarra landa; Bandaríkjanna og Bretlands. Þau voru aðilar að alþjóðlegum sáttmálum um meðferð fanga í aðstæðum sem þessum.“
Stephen Smith, varnarmálaráðherra Ástralíu, segir að ekkert sé hæft í umfjöllun blaðsins en tók fram að hann vissi lítið um málið. „Þetta var áður en núverandi ríkisstjórn tók við völdum,“ segir hann.
Erlent »
- Breivik ætlar ekki að áfrýja
- Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz
-
Lögregla stöðvar mómæli í Bakú
- Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik
- Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna
- Tafir á flugi í Portúgal
- Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar
- Harðir eftirskjálftar á Ítalíu
-
Egyptar kjósa sér forseta
- Víðtækt verkfall í Noregi
- 400 handteknir í mótmælum
- Fellibylurinn Bud nálgast land
- Systur handteknar fyrir barnaníð
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 6. ágúst 2011, Erlent Blendin viðbrögð við lækkun
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Erlent 1200 handteknir vegna mótmæla
- Sunnudagur, 7. ágúst 2011, Erlent Stærðfræðikunnáttan skelfileg
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Erlent Lét fórnarlömbin kalla sig „pabba“
- Sunnudagur, 7. ágúst 2011, Erlent Skella skuldinni hver á annan
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































