Garzón sakfelldur

Baltasar Garzón í réttarsalnum í dag stækka

Baltasar Garzón í réttarsalnum í dag Reuters

Hæstiréttur Spánar hefur dæmt spænska rannsóknardómarann Baltasar Garzón sekan um að hafa heimilað ólöglegar upptökur af samtölum lögmanna.

Garzón var sakaður um að hafa misnotað valdheimildir sínar með því að kafa ofan í glæpi frá tímum borgarastyrjaldarinnar á Spáni og valdatíð Franciscos Francos.

Samkvæmt frétt BBC svipti hæstiréttur Garzón lögmannsréttindum í ellefu ár.

Hann á yfir höfði sér fleiri málaferli en Garzón er einnig sakaður um að hafa hætt rannsókn á yfirmanni stærsta banka Spánar, Santander, eftir að hafa fengið greitt fyrir námskeið sem kostað var af bankanum. Ekki er komin tímasetning á þau réttarhöld.

Talið er að um 114 þúsund manns hafi horfið á tímum borgarastyrjaldarinnar á Spáni á árunum 1936-1939.

Þegar málflutningur hófst í málinu fyrir hæstarétti í síðasta mánuði lögðu saksóknararnir  til að dómstóllinn léti málið niður falla.

Saksóknararnir og verjendur Garzóns kváðust sammála um að hann hefði ekkert gert af sér. Tvenn hægrisamtök höfðuðu málið gegn Garzón fyrir að hefja rannsókn á hvarfi 114 þúsund manna í borgarastyrjöldinni 1936 til 1939 og í tíð einræðisherrans. Í ákærunni á hendur Garzón segir að hann hafi gengið of langt því að tveimur árum eftir að Franco féll frá hafi verið gert samkomulag um sakaruppgjöf vegna þessara mála. Það var gert til að auðvelda breytinguna frá einræði til lýðræðis. Garzón heldur því hins vegar fram að umrædd afbrot heyri undir glæpi gegn mannkyni og sakaruppgjöfin nái því ekki til þeirra.

Garzón komst fyrst í heimsfréttirnar þegar hann krafðist þess árið 1998 að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Síle, yrði framseldur frá London. Hann reyndi einnig að ná í ráðamenn úr herforingjastjórninni í Argentínu fyrir að hafa varpað stjórnarandstæðingum í sjóinn úr flugvélum. Hann hefur barist gegn eiturlyfjahringum og hryðjuverkamönnum.

Hann stefndi Osama bin Laden og rannsakaði meðferð grunaðra hryðjuverkamanna í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Þá stefndi hann George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna þess að hann taldi að Bandaríkjamenn hefðu brotið gegn þjóðarétti þegar þeir réðust inn í Írak. Í upphafi níunda áratugar liðinnar aldar kom hann stjórnarliðum sósíaldemókrata á Spáni í fangelsi fyrir að hafa látið ráða meinta meðhlaupara ETA, skæruliðasamtaka Baska, af dögum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd af flutningaskipinu Rena frá því í apríl

Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi

07:09 Skipstjóri og stýrimaður flutningaskipsins Rena, sem strandaði á Astrolabe-rifi við Nýja-Sjáland 5. október í fyrra, voru í dag dæmdir í sjö mánaða fangelsi hvor. Meira »
Mohammed Mursi

Bandalag múslíma lýsir yfir sigri myndskeið

06:36 Muhammed Mursi, forsetaefni Bræðralags múslíma, er með flest atkvæði þegar búið er að telja um helming atkvæða í forsetakosningunum sem fram fóru í Egyptalandi í gær og fyrradag. Meira »

Hollande í Afganistan

Forseti Frakklands, François Hollande
06:23 Forseti Frakklands, François Hollande, kom í óvænta heimsókn til Afganistan, í dag. Þar lýsti hann því yfir að brottför fransks herliðs frá landinu yrði í samstarfi við samherja Frakka innan Atlantshafsbandalagsins. Meira »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Jarðskjálfti í Christchurch

Frá stóra skjálftanum í fyrra
06:06 Íbúum í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi var brugðið í nótt þegar jarðskjálfti sem mældist 4,7 stig reið yfir borgina. Í fyrra létust 185 í hörðum jarðskjálfta þar. Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.
Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Draghi: Nú er komið að ögurstundu

Mario Draghi bankastjóri Evrópska seðlabankans.
Í gær, 15:23 Óvissa jókst enn á evrusvæðinu í dag eftir að slæmum efnahagshorfum var spáð, fyrst og fremst vegna ástands mála í Grikklandi. Engin lausn virðist í sjónmáli á vanda evrulandanna. Gengi evrunnar hefur ekki verið jafn lágt gagnvart Bandaríkjadollara undanfarna 22 mánuði. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Ónotaðir þakbogar á Honda CRV 2007 til 2012
Er með ónotaða þakboga frá umboðinu fyrir Honda CRV árgerð 2007 til 2012. Fást á...
Freon - Kælimiðlar - 15 ára reynsla
Eigum allar helstu gerðir af kælimiðlum á lager. Beinn innflutningur frá sama fr...
2-3 herbergja íbúð óskast í Rvk
2-3 herbergja íbúð óskast fyrir tvær reglusamar og rólegar vinkonur, helst í hve...
Viðkvæmt að fara í frí frá hundinum?
Þekki það. Á tvo góða hunda og við gætum bætt við ljúflingnum þínum þegar þú fer...
 
Akstur fyrir strætó

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...