Leggja niður störf og mótmæla

Mynd 1 af 3
Mótmælendur komu saman við gríska þinghúsið í gær. AP

Tveggja sólarhringa verkfall hófst í Grikklandi í dag. Verkalýðsfélög standa fyrir aðgerðunum en verið er að mótmæla þeim aðhaldsaðgerðum sem grískir stjórnmálamenn hafa lagt blessun sína yfir vegna þrýstings frá alþjóðlegum lánardrottnum.

Fram kemur á vef breska útvarpsins að mótmælendur hafi safnast saman fyrir utan þinghúsið í höfuðborginni Aþenu. Þingið mun greiða atkvæði um aðgerðirnar nk. sunnudag.

Ráðherrar á evrusvæðinu krefjast þess að grískir þingmenn samþykki niðurskurð og umbætur áður en Grikkland fær afgreitt 130 milljarða evru neyðarlán.

Þeir krefjast ennfremur 325 milljóna evra niðurskurðar í ríkisútgjöldum.

Þá vilja ráðherranir fá tryggingu frá grísku samsteypustjórninni fyrir því að aðhaldsaðgerðunum verði framfylgt.

Grikkir ráða ekki við að greiða sínar skuldir, en skuldabyrðin er gríðarleg. Margir óttast að staðan í Grikklandi gæti ógnað efnahagslegum stöðugleika í Evrópu og jafnvel leitt til þess að evrusvæðið liðist í sundur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd af flutningaskipinu Rena frá því í apríl

Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi

07:09 Skipstjóri og stýrimaður flutningaskipsins Rena, sem strandaði á Astrolabe-rifi við Nýja-Sjáland 5. október í fyrra, voru í dag dæmdir í sjö mánaða fangelsi hvor. Meira »
Mohammed Mursi

Bandalag múslíma lýsir yfir sigri myndskeið

06:36 Muhammed Mursi, forsetaefni Bræðralags múslíma, er með flest atkvæði þegar búið er að telja um helming atkvæða í forsetakosningunum sem fram fóru í Egyptalandi í gær og fyrradag. Meira »

Búsáhaldabylting í Quebec

07:57 Þúsundir mótmælenda voru mættir á götur úti í borginni Montreal í Quebec í Kanada í gærkvöldi með potta og pönnur og létu það ekki stöðva sig að lögreglan hefur handtekið um eitt þúsund mótmælendur í vikunni. Meira »

Jarðskjálfti í Christchurch

Frá stóra skjálftanum í fyrra
06:06 Íbúum í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi var brugðið í nótt þegar jarðskjálfti sem mældist 4,7 stig reið yfir borgina. Í fyrra létust 185 í hörðum jarðskjálfta þar. Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

Hollande í Afganistan

Forseti Frakklands, François Hollande
06:23 Forseti Frakklands, François Hollande, kom í óvænta heimsókn til Afganistan, í dag. Þar lýsti hann því yfir að brottför fransks herliðs frá landinu yrði í samstarfi við samherja Frakka innan Atlantshafsbandalagsins. Meira »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.
Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TOYOTA PRIUS 7/2008 EKINN 64000 KM
Ti sölu mjög gott eintak af Prius,einn eigandi 100% þjónusta áett verð 2.790.000...
Galeon 610
Mjög vel með farinn 5.9 m með Yamaha F150 (150hp) og kerru til sölu. 5.9 mil...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast í júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj. 3-5 svefnherb., ...
 
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...