Spilling verður N-Kóreu að falli
Elsti sonur Kim Jong-Il heitins segir að mútur og spilling séu allsráðandi í Norður-Kóreu og muni verða ríkinu að falli. Tölvupóstsamskipti hans við japanskan blaðamann voru opinberuð í dag.
Kim Jong-Nam er hálfbróðir Kim Jong-Un sem tók við stjórn kommúnistaríkisins eftir dauða föður þeirra. Hann hefur skrifast á við japanska blaðamanninn Yoji Gomi um hríð og birtust tölvupóstar hans í tímaritinu Bungeishunju í dag.
Minnir á Sovétríkin rétt fyrir fallið
Jong-Nam segir að Norður-Kórea sé svo gegnsýrð af spillingu að stjórnmálakerfi landsins geti ekki lifað af til lengdar. „Múturnar, sem kaupmenn verða að bjóða háttsettum embættismönnum til þess að lifa af, eru sífellt að hækka. Svona spillt kerfi hlýtur óhjákvæmilega að hrynja. Þetta minnir mig á stöðuna í Sovétríkjunum, rétt áður en þau féllu,“ sagði Jong-Nam í tölvupósti dagsettum 7. desember.
Í öðrum pósti frá 5. ágúst í fyrra sagði hann að ungmenni í Norður-Kóreu verði fyrir miklum áhrifum frá kapítalisma og menningu Suður-Kóreu, sem berist til þeirra þrátt fyrir allt. „[Þau] lifa sínu eigin lífi og leitast við að fara á svig við ofríkið. Svo ég ráðlagði Jong-Un að bjóða þeim betri lífskjör með því að opna landið og gera umbætur.“
Portrett af Kim Il-Sung stofnanda Norður-Kóreu prýðir hér vegg íbúðablokkar í Pyongyang. Ljósmyndin vann verðlaun World Press Photo fyrir myndir ... Worl Press Photp/Damir Sagolj
Stjórnmálaástandið hættulegt
Sex dögum áður en tárvotur sjónvarpsþulur tilkynnti dauða Kim Jong-Il sagði sonur hans í tölvupósti til Japans að traust almennings á leiðtogum Norður-Kóreu væri splundrað í kjölfar misheppnaðra aðgerða stjórnvalda árið 2009 til að kæfa niður svartamarkaðsverslun í landinu og stýra verðlagi. Fregnir herma að embættismaðurinn sem stýrði aðgerðunum hafi verið tekinn af lífi eftir að þær fóru í súginn.
„Aldraður leiðtogi, óreyndur arftaki, efnahagur í rústum... það er talið að stjórnmálaástandið í norðri sé hættulegt,“ sagði Jong-Nam. Hann taldi bróður sinn ekki nógu gamlan til að verða leiðtoga Norður-Kóreu. „Ég get ekki séð í svip þessa stráks neina alvöru eða ábyrgð sem komandi leiðtogi ríkis sem er í svona flókinni stöðu. Hann er ekki djúpþenkjandi um framtíð þessa lands,“ sagði í tölvupósti dagsettum 4. nóvember.
Suður-Kóreumenn og flóttamenn frá Norður-Kóreu mótmæla mannréttindabrotum í Norðri á götum Seoul í janúar 2012. Reuters
Herinn stjórnar sér sjálfur
Litlu munaði að ógnarjafnvæginu milli suðurs og norðurs yrði steypt í nóvember 2010 þegar norðurkóreski herinn gerði sprengjuárás á Yeonpyeong-eyju, sem drap 4 Suður-Kóreumenn. Jong-Nam segir að herinn hafi gert árásina til að sýna sig og réttlæta kjarnorkuáætlun landsins. Hann telur að herinn sé öflugasta aflið í landinu sem lúti sinni eigin stjórn.
„Faðirinn er gamall, arftakinn er ungur, föðurbróðirinn hefur enga hernaðarreynslu. Svo það er í rauninni enginn sem getur stjórnað hernum,“ sagði hann og vísaði í Jang Song Thaek, frænda þeirra, sem margir telja að sé heilinn á bak við einræðisherrann.
Kim Jong-Nam var lengi vel talinn líklegasti arftaki Kim Jong-Il, enda elsti sonur hans. Hann var hinsvegar settur út af sakramentinu árið 2001 eftir að hann gerði tilraun til að komast ásamt fjölskyldu sinni til Japans með fölsuðu vegabréfi. Hann er sagður búa fyrst og fremst í Kína.





































