Dóná fraus í nótt

Skip siglir í klakahröngli á Dóná í gær. Áin er nú frosin á um 11 ... stækka

Skip siglir í klakahröngli á Dóná í gær. Áin er nú frosin á um 11 kílómetra kafla. Reuters

Yfirborðsvatn Dónár fraus í nótt, skammt frá höfninni í Silistra í Búlgaríu. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár sem áin frýs.

Dóná er afar mikilvæg samgöngu- og flutningaleið og rennur meðal annars í gegnum Austurríki, Króatíu, Serbíu og Ungverjaland.

Áin fraus í nótt á um 11 kílómetra löngum kafla. Búist er við því að stærri hlutar árinnar muni frjósa í dag.

Umferð um ána hefur verið takmörkuð síðan á miðvikudaginn, en engir ísbrjótar munu vera tiltækir í næsta nágrenni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd af flutningaskipinu Rena frá því í apríl

Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi

07:09 Skipstjóri og stýrimaður flutningaskipsins Rena, sem strandaði á Astrolabe-rifi við Nýja-Sjáland 5. október í fyrra, voru í dag dæmdir í sjö mánaða fangelsi hvor. Meira »
Mohammed Mursi

Bandalag múslíma lýsir yfir sigri myndskeið

06:36 Muhammed Mursi, forsetaefni Bræðralags múslíma, er með flest atkvæði þegar búið er að telja um helming atkvæða í forsetakosningunum sem fram fóru í Egyptalandi í gær og fyrradag. Meira »

Búsáhaldabylting í Quebec

07:57 Þúsundir mótmælenda voru mættir á götur úti í borginni Montreal í Quebec í Kanada í gærkvöldi með potta og pönnur og létu það ekki stöðva sig að lögreglan hefur handtekið um eitt þúsund mótmælendur í vikunni. Meira »

Jarðskjálfti í Christchurch

Frá stóra skjálftanum í fyrra
06:06 Íbúum í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi var brugðið í nótt þegar jarðskjálfti sem mældist 4,7 stig reið yfir borgina. Í fyrra létust 185 í hörðum jarðskjálfta þar. Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

Hollande í Afganistan

Forseti Frakklands, François Hollande
06:23 Forseti Frakklands, François Hollande, kom í óvænta heimsókn til Afganistan, í dag. Þar lýsti hann því yfir að brottför fransks herliðs frá landinu yrði í samstarfi við samherja Frakka innan Atlantshafsbandalagsins. Meira »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.
Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Ríkasta kona heims

Í gær, 15:28 Ástralinn Gina Rinehart er ríkasta kona heims samkvæmt því sem fram kemur í ástralska viðskiptatímaritinu BRW. Eru auðæfi Rineharts, sem er 58 ára, metin á 29 milljarða ástralska dali, eða sem samvarar 3.600 milljarða kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingarí síma 8694479 og 8...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
DÖMU MOKKASÍUR
Teg. 5011 Mjúkar og þægilegar dömu mokkasíur úr leðri, skinnfóðraðar. - Litur: S...
Til sölu ný. Flutninga - Farangurskerra
Ný vönduð. Galvhúðuð klædd með álplötum. 2 hurðir stór afturhurð. max 750.kg Ber...
 
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings
Tilkynningar
Norðurþing Skipulags- og bygg...
Framhalds uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...