Kennedyættin aftur í stjórnmál
Joseph P. Kennedy III sést hér faðma föður sinn, fyrrum fulltrúadeildarþingmanninn Joseph P. Kennedy II í dag eftir að hafa tilkynnt um framboð sitt. Hann er nýjasta vonarstjarna Kennedy ættarinnar í bandarískum stjórnmálum. AP
Frændi Johns F. Kennedys, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hóf í dag baráttu sína fyrir sæti á Bandaríkjaþingi. Kennedyættin hefur verið farsæl í stjórnmálum vestanhafs, en um þessar mundir er enginn fulltrúi ættarinnar í bandarískum stjórnmálum.
Demókratinn Joseph Kennedy III er 31 árs. Hann birti í dag myndband þar sem tilkynnt var formlega um kosningabaráttu hans. Þá eyddi hann morgninum í að hitta starfsmenn framboðsins í Newton, sem er eitt af héruðum Massachusetts, en þar hyggst hann vinna fulltrúaþingsæti þingmannsins Barneys Franks, sem nú lætur af störfum.
„Ég trúi því að þetta land hafi verið stofnað á þeim forsendum að hver einstaklingur eigi rétt á að vera meðhöndlaður réttlátlega af öðru fólki og af stjórnvöldum. En sú hugsun á sér ekki grundvöll í Bandaríkjunum lengur,“ sagði Kennedy á myndbandinu.
Joseph Kennedy III sést hér ræða við starfsmenn framboðs hans og stuðningsmenn eftir að hann tilkynnti um framboðið. AP
„Ég hef talað við fólk um allt ríkið sem trúir því að Washington vinni ekki lengur fyrir það,“ sagði hann og bætti við: „Skattastefnan á ekki að fela í sér að millistéttin sé sköttuð til að borga skattfríðindi þeirra ríku.“
Ef Kennedy nær sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í nóvember þýðir það að ætt hans er aftur komin inn í landsmálapólitíkina, en eftir að Patrick Kennedy, sonur Edwards Kennedys, lét af embætti snemma á síðasta ári hefur enginn úr Kennedy-ættinni starfað á þeim vettvangi.
Þingmannsefnið, sem er aðstoðarsaksóknari, er sonur fyrrverandi fulltrúadeildarþingmannsins Josephs P. Kennedys II, en hann var sonur Roberts F. Kennedys, sem var myrtur á sínum tíma og var bróðir forsetans fyrrverandi.
Hann talar spænsku reiprennandi. Útskrifaðist frá Stanford-háskóla og með lagapróf frá Harvard. Þá starfaði hann í friðarsveit í Dóminíska lýðveldinu.
Fjölmargir af Kennedy-ættinni hafa komist til áhrifa í Washington frá því að John F. Kennedy hóf sinn pólitíska feril með því að vinna þingmannssæti í Massachusetts árið 1946, sem síðar leiddi til þess að hann settist í stól forseta þessa valdamesta lands í heimi.
Með láti öldungadeildarþingmannsins Edwards Kennedys árið 2009 urðu ákveðin kaflaskil í sögu ættarinnar, en eftir það var enginn úr henni í mikilvægri valdastöðu og ýmsir töldu að þar með væru dagar fjölskyldunnar í stjórnmálum taldir.
Joe Kennedy sagði á myndbandinu í morgun: „Fjölskylda mín hefur áður notið þess heiðurs að fá að þjóna Massachusetts.
Þeir kenndu mér að þjónusta við almenning er heiður sem byggist á trausti og undir því trausti verður maður að standa á hverjum degi. Og það er nákvæmlega það sem ég hyggst gera.“
Kennedy-ættin var í eina tíð ósigrandi í kosningum í Massachusetts, sem er frekar frjálslynt ríki. En eftir brotthvarf Edwards Kennedys urðu ákveðnar breytingar sem leiddu til þess að repúblikaninn Scott Brown vann sæti hans í öldungadeildinni.





































