Breivik gerði dauðalista
Anders Behring Breivik hugðist ráðast á um 30 staði til viðbótar Útey og Ósló og ætlaði ýmist að nota sprengjur eða skotvopn. Hann var búinn að gera lista yfir 12 þekkta Norðmenn sem hann hugðist ráða af dögum vegna þess að hann sagði þá vera föðurlandssvikara.
Þetta kom fram í yfirheyrslum yfir Breivik í gær. Þar nefndi hann svo marga staði sem hann hafði haft í hyggju að ráðast á að lögreglan bað hann að gera lista.
Meðal þeirra sem voru á dauðalista Breivik eru fyrrverandi forsætisráðherrarnir Gro Harlem Brundtland, Kåre Willoch og Kjell Magne Bondevik, Torry Pedersen, ritstjóri dagblaðsins Verdens Gang, og Hilde Haugsgjerd, sem gegnir stjórnunarstöðu á norska dagblaðinu Aftenposten. Að auki voru samtök á borð við Amnesty International á lista Breivik.
Ætlaði að sprengja konungshöllina
Vafi leikur á því hversu langt þessi skipulagning Breivik var komin þegar hann framdi ódæðin 22. júlí í fyrra. Hann hefur orðið nokkuð margsaga í yfirheyrslum.
„Hann var að minnsta kosti búinn að skipuleggja árásir á ýmsa staði. Við höfum þó engar sannanir fyrir því að hann hafi útfært þessar hugmyndir á nokkurn hátt, fyrir utan að við fundum efni til sprengjugerðar á Vålstua-sveitabænum (þar sem Breivik skipulagði árásina 22. júlí),“ segir Pål-Fredrik Kraby, lögmaður norsku lögreglunnar, í samtali við norska dagblaðið Verdens Gang.
Breivik hefur haldið því fram í yfirheyrslum að árásirnar á stjórnarbyggingarnar í Ósló og á Útey 22. júlí hafi verið varaáætlun hans. „Plan A“ hafi verið að sprengja 3-4 bílsprengjur í Ósló. Fyrsta sprengjan átti að springa í hverfinu þar sem stjórnarbyggingarnar eru, síðan ætlaði hann að sprengja höfuðstöðvar Verkamannaflokksins og þá konungshöllina. Ef hann hefði komist óáreittur af staðnum hugðist hann næst sprengja skrifstofur Sósíalíska vinstriflokksins og ritstjórnarskrifstofur dagblaðsins Dagsavisen.
Eitt allsherjar leikrit
Kraby segir hugsanlegt að Breivik sé að ýkja. „Ýmislegt bendir til þess að hann langi til að virðast hafa getað unnið meira tjón en hann í rauninni hafði hugsað sér,“ segir hann. „En það er staðreynd að við fundum mikið magn af efnum til sprengjugerðar á sveitabænum og það bendir til þess að hann hafi haft fleiri hryðjuverk í hyggju.“
Magnus Ranstorp, einn helsti sérfræðingur Noregs á sviði hryðjuverka, segir að Breivik sé líklega að ýkja. „Það er hluti af aðferðum hans við að leiða rannsóknina á villigötur. Hann vill virðast mikilvægari en hann í raun og veru er. Fyrir honum er þetta eitt allsherjar leikrit þar sem hann er í aðalhlutverki.“





































