Banvænn hrekkur

Dharun Ravi í héraðsdómi í Middlesex í dag stækka

Dharun Ravi í héraðsdómi í Middlesex í dag Reuters

Réttarhöld eru að hefjast yfir nítján ára gömlum pilti í New Jersey í Bandaríkjunum en hann er sakaður um að hafa myndað á laun samkynhneigðan herbergisfélaga sinn sem síðar framdi sjálfsvíg. Málið vakti hörð viðbrögð í Bandaríkjunum á sínum tíma og þær árásir sem samkynhneigð ungmenni í landinu þurfa oft að þola.

Dahrun Ravi á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsisvist verði hann fundinn sekur um alla ákæruliði. Meðal annars brot á friðhelgi einkalífs, þvingun og að hafa tafið fyrir rannsókn málsins.

Saksóknarar segja að Ravi sé hommahatari sem hafi notað myndavél í fartölvu sinni til þess að njósna um herbergisfélaga sinn, Tyler Clementi. Hann hafi meðal annars tekið upp á myndband þegar Clementi var að kyssa annan karlmann í herbergi þeirra á heimavist Rutgers-háskólans í New Jersey hinn 19. september árið 2010. Hann bauð síðan fleiri nemendum að koma og fylgjast í gegnum vefmyndavél með Clementi  tveimur dögum síðar. Eins sendi hann félögum skilaboð um hvað hefði komið fram á upptökunni og komst Clementi þannig að framferði herbergisfélagans. 

Clementi, sem var mjög efnilegur fiðluleikari, framdi síðan sjálfsvíg hinn 22. september með því að stökkva fram af George Washington-brúnni sem tengir New Jersey og New York.

Ravi segist vera saklaus og neitaði að semja um sekt gegn vægari refsingu. Hann heldur því fram að hann hafi ekki ætlað að særa neinn heldur hafi þetta einungis verið hrekkur af hans hálfu. Hann er ekki ákærður fyrir að bera ábyrgð á dauða Clementis.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd af flutningaskipinu Rena frá því í apríl

Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi

07:09 Skipstjóri og stýrimaður flutningaskipsins Rena, sem strandaði á Astrolabe-rifi við Nýja-Sjáland 5. október í fyrra, voru í dag dæmdir í sjö mánaða fangelsi hvor. Meira »
Mohammed Mursi

Bandalag múslíma lýsir yfir sigri myndskeið

06:36 Muhammed Mursi, forsetaefni Bræðralags múslíma, er með flest atkvæði þegar búið er að telja um helming atkvæða í forsetakosningunum sem fram fóru í Egyptalandi í gær og fyrradag. Meira »

Meintur fjöldamorðingi í haldi

08:14 Kínverska lögreglan hefur handtekið mann sem er grunaður um að hafa myrt á annan tug drengja og ungra karlmanna, brytjað lík þeirra niður og selt. Meira »

Hollande í Afganistan

Forseti Frakklands, François Hollande
06:23 Forseti Frakklands, François Hollande, kom í óvænta heimsókn til Afganistan, í dag. Þar lýsti hann því yfir að brottför fransks herliðs frá landinu yrði í samstarfi við samherja Frakka innan Atlantshafsbandalagsins. Meira »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »

Búsáhaldabylting í Quebec

07:57 Þúsundir mótmælenda voru mættir á götur úti í borginni Montreal í Quebec í Kanada í gærkvöldi með potta og pönnur og létu það ekki stöðva sig að lögreglan hefur handtekið um eitt þúsund mótmælendur í vikunni. Meira »

Jarðskjálfti í Christchurch

Frá stóra skjálftanum í fyrra
06:06 Íbúum í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi var brugðið í nótt þegar jarðskjálfti sem mældist 4,7 stig reið yfir borgina. Í fyrra létust 185 í hörðum jarðskjálfta þar. Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.
Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Mitsubishi Pajero árg. 1992 til sölu.
Til sölu góður Mitsubishi Pajero árg. 1992. Bensín. Ekinn 270.000. Lítur vel út...
YAMAHA V-STAR 650cc 2005
Fallegt og þægilegt hjól fyrir byrjendur og lengra komna, ekið 9800 km vel með f...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Sérsmíðuð garðhúsgögn
Til sölu sérsmíðuð garðhúsgögn úr gagnvarini furu upplýsingar í síma 8694479 og ...
 
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings
Tilkynningar
Norðurþing Skipulags- og bygg...
Útboð hólmavíkurhöfn

STRANDABYGGÐ Útboð Hólmavíkurhöfn...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...