Biðst afsökunar á brennum

Mótmæli fyrir utan herstöðina í Bagram í dag. stækka

Mótmæli fyrir utan herstöðina í Bagram í dag. Reuter

Yfirmaður bandaríska heraflans í Afganistan, John Allen, hefur beðist formlega afsökunar á því að íslömskum trúarritum, þar á meðal fjölda eintaka af Kóraninum, hafi verið eytt af hermönnum. Allen sagði ennfremur að málið yrði rannsakað frekar.

„Ég bið einlægur afsökunar á því að hafa misboðið forseta Afganistan, ríkisstjórn Afganistan og fyrst og fremst hinni göfugu alþýðu Afganistan,“ sagði Allen.

Hann vék þó ekki nánar að því með hvaða hætti trúarritunum var „eytt“ en ljósmyndari AFP fékk aðgang að eintökum Kóransins sem höfðu að hluta til verið brennd en að sögn verið bjargað af afgönskum starfsmönnum inni í bandarísku herstöðinni.

Mótmælendur vörpuðu bensínsprengjum og sátu um umfangsmestu bandarísku herstöðina í Afganistan í dag. Mikil reiði ríkti vegna fréttaflutnings af því að bandarískir hermenn hefðu brennt eintök af Kóraninum.

Mótmælendur kölluðu „Bandaríkjamenn deyi“, „Dauði yfir trúleysingjum“ á meðan verðir skutu gúmmíkúlum í varnarskyni að þeim. Ljósmyndari fréttastofu AFP kvaðst hafa verið hæfður í hálsinn.

Hundruð manna mótmæltu í höfuðborginni og öryggissveitir voru kallaðar á vettvang til að koma í veg fyrir algjört stjórnleysi.

Að sögn tilkynntu afganskir starfsmenn á herstöð Bandaríkjamanna fyrst um að Kóraninn hefði verið brenndur þar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Mynd af flutningaskipinu Rena frá því í apríl

Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi

07:09 Skipstjóri og stýrimaður flutningaskipsins Rena, sem strandaði á Astrolabe-rifi við Nýja-Sjáland 5. október í fyrra, voru í dag dæmdir í sjö mánaða fangelsi hvor. Meira »
Mohammed Mursi

Bandalag múslíma lýsir yfir sigri myndskeið

06:36 Muhammed Mursi, forsetaefni Bræðralags múslíma, er með flest atkvæði þegar búið er að telja um helming atkvæða í forsetakosningunum sem fram fóru í Egyptalandi í gær og fyrradag. Meira »

Meintur fjöldamorðingi í haldi

08:14 Kínverska lögreglan hefur handtekið mann sem er grunaður um að hafa myrt á annan tug drengja og ungra karlmanna, brytjað lík þeirra niður og selt. Meira »

Hollande í Afganistan

Forseti Frakklands, François Hollande
06:23 Forseti Frakklands, François Hollande, kom í óvænta heimsókn til Afganistan, í dag. Þar lýsti hann því yfir að brottför fransks herliðs frá landinu yrði í samstarfi við samherja Frakka innan Atlantshafsbandalagsins. Meira »

Frönsku reykingafólki fjölgar

Í gær, 23:30 Reykingafólki hefur farið nokkuð fjölgandi í Frakklandi þrátt fyrir reykingabann á skemmtistöðum og veitingastöðum og hærri skatta á tóbak en um þriðjungur Frakka reykir nú samkvæmt nýjum tölum. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.fr. Meira »

Búsáhaldabylting í Quebec

07:57 Þúsundir mótmælenda voru mættir á götur úti í borginni Montreal í Quebec í Kanada í gærkvöldi með potta og pönnur og létu það ekki stöðva sig að lögreglan hefur handtekið um eitt þúsund mótmælendur í vikunni. Meira »

Jarðskjálfti í Christchurch

Frá stóra skjálftanum í fyrra
06:06 Íbúum í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi var brugðið í nótt þegar jarðskjálfti sem mældist 4,7 stig reið yfir borgina. Í fyrra létust 185 í hörðum jarðskjálfta þar. Meira »

Embættismennirnir verði sóttir til saka

Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng.
Í gær, 23:03 Kínverski andófsmaðurinn Chen Guangcheng hvatti stjórnvöld í Kína til þess að sækja til saka löglausa embættismenn sem hefðu áreitt og misþyrmt honum, fjölskyldu hans og stuðningsmönnum viðtali við Reuters- fréttaveituna í dag sem er eitt það fyrsta sem hann hefur veitt eftir að hann kom til Bandaríkjanna síðastliðinn laugardag. Meira »

Skotar lögbinda áfengisverð

Skotar hafa bundið verð á áfengi í lög til að reyna að hemja drykkju landsmanna.
Í gær, 21:50 Skosk stjórnvöld hafa lögbundið lágmarksverð á áfengi í þeim tilgangi að stemma stigu við óhóflegri drykkju landsmanna. Ekki má selja áfengseininguna fyrir lægra verð en 50 pens frá og með apríl á næsta ári, en slík eining er skilgreind sem einn sentílítri. Meira »

„Marshall-aðstoð“ fyrir Sýrlendinga

Frá Sýrlandi.
Í gær, 21:23 Sendiherrar og starfsmenn utanríkisþjónustunnar í um 60 löndum ræddu í dag áætlun um að koma efnahag Sýrlands til bjargar, en átök hafa staðið yfir í landinu undanfarna 14 mánuði. Fulltrúar landa Arababandalagsins, Evrópusambandsins, Persaflóaríkjanna, auk fulltrúa SÞ tóku þátt í viðræðunum. Meira »

Þátttaka í vörnum Íslands ótengd NATO

Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands.
Í gær, 21:27 Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, hafnaði því alfarið í umræðum í finnska þinginu í dag að tillaga um að Finnar tækju þátt í norrænu samstarfi við að gæta lofthelgi Íslands væri hugsuð til þess að koma Finnlandi inn í Atlantshafsbandalagið (NATO). Meira »

Fangar látnir lausir vegna verkfalls

Frá Bergen í Noregi.
Í gær, 20:29 Tugir fanga í fangelsinu í Bergen í Noregi voru leystir úr haldi í morgun vegna verkfalls opinberra starfsmanna í landinu. Fangarnir í fangelsinu, 72 að tölu, voru kallaðir á fund í morgun þar sem þeim var tilkynnt að fangelsið yrði tæmt til þess að fangaverðirnir gætu farið í verkfall og flestir fanganna yrðu því látnir lausir. Meira »

Eldur í norskri eyju

Reyk lagði frá eyjunni Sotra í dag.
Í gær, 18:54 Slökkviliðsmenn í Bergen í Noregi hafa barist við eld í eyjunni Sotra, sem er skammt undan landi, í meira en sólarhring án árangurs. Nokkrar íbúðir hafa verið rýmdar í eyjunni og hugsanlega þarf að rýma fleiri. Þykkan reyk leggur yfir Bergen og nágrannabyggðir. Meira »

Norskir ríkisstarfsmenn geri of miklar kröfur

Jens Stoltenberg
Í gær, 16:57 Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs segir að opinberir starfsmenn fari fram á of mikla launahækkun. Tilboð ríkisins um 4% launahækkun hafi verið gott. Þúsundir norskra ríkisstarfsmanna lögðu niður störf í dag, þar á meðal flest starfsfólk Óslóarháskóla. Meira »

Sundrung meðal stjórnarandstæðinga

Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna og stjórnarandstöðunnar í Sýrlandi.
Í gær, 16:21 Burhan Ghalioun fyrrverandi leiðtogi Sýrlenska þjóðarráðsins, helstu samtaka stjórnarandstæðinga í Sýrlandi, segir að mikil sundrung sé í ráðinu og að það hafi ekki staðið sig sem skyldi í því upplausnarástandi sem ríkir í landinu. Meira »

Telja Ísrael vera „árásargjarnt“

Forseti Þýskalands, Joachim Gauck, og kanslari landsins Angela Merkel.
Í gær, 17:28 Mikill meirihluti Þjóðverja telur Ísrael vera „árásargjarnt“ og telja að Þýskaland hafi ekki lengur sérstökum skyldum að gegna gagnvart landinu samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem birt var í dag. Meira »

Bud er orðinn að annars stigs stormi

Mynd tekin af gervihnetti af fellibylnum Bud.
Í gær, 16:31 Fyrsti fellibylur tímabilsins, sem nefndur hefur verið Bud, er orðinn að annars stigs stormi. Hann ferðast á 165 kílómetra hraða á klukkustund og er nú staddur undan suðvesturströnd Mexíkó. Meira »

Áfram réttað yfir Mladic

Ratko Mladic í dómsal Alþjóðadómstólsins í Haag 16. maí síðastliðinn.
Í gær, 16:02 Réttarhöldin yfir Ratko Mladic, fyrrum yfirmanni hers Bosníu-Serba í Bosníustríðinu, sem hefur viðurnefnið Slátrarinn frá Bosníu, munu halda áfram 25. júní. Gert var hlé á þeim daginn eftir að þau hófust við Alþjóðadómstólinn í Haag vegna „óreglu“ í skipulagi réttarhaldanna. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
OPEL ASTRA ENJOY
Opel Astra Enjoy Nýskr. 4/2007, ekinn 93 þ. km, bensín, 5 g...
Aquaflex grindarbotnsþjálfi
Hvað gerist ef þú hlærð of mikið, hnerrar óvænt, beygir þig fram eða ferð í leik...
Sumarhús til leigu - Reykholt Bisk.
Bústaður til leigu við Reykholt í Biskupstungum. Laus þessa viku (Hvítasunnuhelg...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
 
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Útboð hólmavíkurhöfn

STRANDABYGGÐ Útboð Hólmavíkurhöfn...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...