Uppbygging ári eftir skjálftann
Borgarbúar í Christchurch á Nýja-Sjálandi vinna enn að uppbyggingarstarfi og reyna að gæða borgina lífi að nýju, ári eftir að mannskæður jarðskjálfti reið þar yfir og lagði allt í rúst.
Það var 22. febrúar 2011 sem skjálfti af stærðinni 6,3 reið yfir Christchurch með þeim afleiðingum að 184 létust. Borgin er smám saman að jafna sig á hamförunum, en afleiðingar þeirra sjást þó enn.
Flest háhýsi í viðskiptahverfi borgarinnar hrundu í skjálftanum eða voru rifin vegna skemmda í kjölfar hans. Nú, ári síðar, hafa litríkir skipagámar verið settir upp tímabundið í staðinn og hýsa þeir veitingahús og verslanir. Margir líta á þetta sem tækifæri til að byrja upp á nýtt með hreint borð.
„Margir hafa fyllst auknum krafti til uppbyggingar og staðreyndin er sú að við ætlum okkur að endurreisa viðskiptahverfið frá grunni, og byggja eitthvað miklu meira lifandi og áhugavert en það sem við höfðum áður. Svo þetta er borg tækifæranna, í margra huga,“ segir framkvæmdastjóri uppbyggingarstarfsins í borginni, Roger Sutton.
Í annarra augum verður tjónið hins vegar aldrei bætt, að sögn sálfræðingsins Fran Vertue. „Margir misstu ástvini, aðrir sluppu naumlega með lífshættulega áverka sem breyta lífi þeirra varanlega. Sumir misstu lífsviðurværi sitt og hjá mörgum hefur daglegt líf breyst til frambúðar. Verslanirnar sem þú sóttir kannski allt þitt líf eru hrundar til grunna. Allt hefur breyst, það tekur núna tvöfalt lengri tíma en áður að ferðast þvert yfir borgina. Svo allt landslag borgarinnar og lífsmunstur íbúanna hefur breyst í kjölfar jarðskjálftanna.“
Minningarathöfn verður haldin á morgun um þá sem létu lífið í skjálftanum.
Erlent »
- Ríkasta kona heims
- Draghi: Nú er komið að ögurstundu
- Breivik ætlar ekki að áfrýja
- Grunaður um aðild að hvarfi Etan Patz
-
Lögregla stöðvar mómæli í Bakú
- Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik
- Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna
- Tafir á flugi í Portúgal
- Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar
- Harðir eftirskjálftar á Ítalíu
-
Egyptar kjósa sér forseta
- Víðtækt verkfall í Noregi
- 400 handteknir í mótmælum
- Fellibylurinn Bud nálgast land
- Systur handteknar fyrir barnaníð
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
- Breivik minnti á Voldemort
- Handtekin í brúðkaupsveislunni sinni
- Lögreglumaður myrtur á kjörstað
- Hvetja íbúa til að snúa aftur heim
- Örin eftir Breivik tákn um sigur
- Fórnarlömb sýruárása óttast hefndaraðgerðir
- Rændu hjálparstarfsmönnum
- Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 22. febrúar 2011, Erlent Mannskæður jarðskjálfti
- Sunnudagur, 20. maí 2012, Erlent Mannskæður jarðskjálfti á Ítalíu
- Sunnudagur, 1. janúar 2012, Erlent Jarðskjálfti í Christchurch
- Þriðjudagur, 1. mars 2011, Erlent 2 mínútna þögn á Nýja-Sjálandi
- Föstudagur, 25. maí 2012, Erlent Jarðskjálfti í Christchurch
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu



































