Hundruð þúsunda Þjóðverja orkulaus
Hundruð þúsunda Þjóðverja verða að líkindum án raforku á næstunni vegna þess að þeir hafa ekki getað greitt rafmagnsreikningana sína. Þetta kemur fram á fréttavefnum Thelocal.de í dag og er þar vísað til niðurstaðna rannsóknar á vegum neytendasamtaka í þýska fylkinu Nordrhein-Westfalen í vesturhluta Þýskalands.
Samkvæmt niðurstöðunum hefur 300 þúsund manns í fylkinu verið hótað af orkufyrirtækjum að lokað verði fyrir rafmagn til þeirra vegna ógreiddra reikninga. Þá kemur einnig fram að lokað hafi verið fyrir rafmagn til 62 þúsund fjölskyldna í fylkinu árið 2010 vegna fjárhagsvandræða þeirra en nýjustu opinberar tölur eru frá því ári.
Ennfremur kemur fram að af þeim 58 orkufyrirtækjum sem rannsóknin náði til hafi þrjú af hverjum fjórum sagt að viðskiptavinir þeirra ættu í erfiðleikum með að greiða rafmagnsreikninga sína.
„Verðhækkanir upp á um 15% á rafmagni og gasi undanfarin tvö ár hafa þýtt að orka er að verða að gæðum sem mörg heimili hafa ekki efni á,“ er haft eftir Klaus Müller hjá neytendasamtökunum. Hann sagðist telja að um það bil 120 þúsund heimili í Nordrhein-Westfalen væru án orku vegna ógreiddra reikninga og um 600 þúsund á landsvísu í Þýskalandi.
Fram kemur í fréttinni að samkvæmt þýskum lögum þurfi orkufyrirtæki að fara í gegnum ákveðið lagalegt ferli áður en þau geta lokað fyrir orku til fólks og þar á meðal að senda því ítrekaðar viðvaranir. Þá eru ríkari kröfur gerðar þegar um er að ræða fólk sem á einhvern hátt á undir högg að sækja, til að mynda vegna fötlunar. Ekki er nóg að viðkomandi geti ekki eða vilji ekki greiða reikningana sína.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. desember 2011, Erlent Veðurviðvörun í Skotlandi
- Sunnudagur, 13. mars 2011, Erlent Búist við skorti á rafmagni í Japan
- Mánudagur, 12. september 2011, Erlent Mikil flóð á Indlandi
- Sunnudagur, 19. júní 2011, Erlent Verðhækkanir í kjölfar flóða
- Mánudagur, 21. maí 2012, Erlent Fimmtungur sett kynferðislegar myndir á netið
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































