Nauðgaði og myrti ólétta unglingsstúlku
Maður í Wales hefur verið fundinn sekur um að hafa nauðgað og myrt unglingsstúlku sem var komin 38 vikur á leið. Maðurinn var frændi og náinn vinur kærasta stúlkunnar.
Carl Whant, sem er 27 ára, starfaði sem dyravörður á næturklúbbi og viðurkennir hann að hafa glímt við kókaínfíkn. Hann var einnig dæmdur fyrir íkveikju. Whant hlaut lífstíðardóm og þarf að afplána minnst 35 ár.
Skaðbrunnar líkamsleifar Nikittu Grender fundust í íbúð hennar og kærastans Ryan Mayes snemma að morgni 5. febrúar 2011. Krufning leiddi í ljós að hún hafði verið stungin í hálsinn og kviðinn. Ljóst þykir að Grender hafi verið látin áður en Whant kveikti í íbúðinni, í því skyni að reyna að eyða öllum sönnunargögnum. Hundur Grender lést í eldsvoðanum. Whant losaði sig við morðvopnið en lögreglan hafði hendur í hári hans eftir að sæði úr honum fannst í líki Grender. Þá fannst DNA úr Grender í bíl Whants.
Whant neitaði að hafa komið nálægt morðinu og sagði að þau hefðu stundað kynlíf daginn áður en hún fannst látin. Hinsvegar var það vel þekkt á meðal vina og ættingja Grender að henni var illa við Whant.
Myndbandsupptökur, sem sýna bíl Whants nálægt morðvettvanginum, voru lagðar fram sem sönnunargögn auka mynda af rispum og klóri á úlnliðum og olnbogum Whants, en þær voru teknar skömmu eftir morðið. Whant sagðist hinsvegar hafa verið á leið heim til ömmu sinnar að ná í sígarettur. Hún ætti heima nokkurn spöl frá heimili Grender en hann hafi hinsvegar ákveðið að keyra óhefðbundna leið til hennar í því skyni að reyna að forðast lögreglueftirlit þar sem hann hafði neytt eiturlyfja og áfengis áður en hann settist á bak við stýrið. Rispurnar væru eftir slagsmál á krá fyrr um kvöldið.
Þegar dómurinn hafði verið kveðinn upp sagði frændi Grender við fjölmiðla: „Síðustu 12 mánuðirnir hafa verið okkur erfiðari en við áttum nokkurn tímann von á. Við eigum enn erfitt með að trúa því sem gerðist.“
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Erlent 17 ára nauðgaði og myrti 13 ára stúlku
- Mánudagur, 11. júlí 2011, Erlent Murdoch hefur ekki beðist afsökunar
- Laugardagur, 12. maí 2012, Erlent Fannst grafin í sandi eftir 70 ár
- Miðvikudagur, 9. maí 2012, Erlent Hermaður í fangelsi fyrir nauðgun
- Fimmtudagur, 22. september 2011, Erlent Ákærður fyrir morð og nauðganir
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































