Samkynhneigðir „ekki ofsóttir“ í Úganda
Forseti Úganda, Yoweri Museveni, fullyrti í dag að hann væri ekki hlynntur ofsóknum gegn samkynhneigðum í landi sínu, þrátt fyrir að alræmt frumvarp gegn samkynhneigð hafi að nýju verið lagt fyrir þingið í síðustu viku.
Museveni var gestur breska spjallþáttarins Hard Talk á BBC. Hann sagði þar að hann teldi samkynhneigð ekki vera eðlilega, en það mætti samt umbera hana ef henni væri ekki flíkað. „Samkynhneigðir hafa, í litlum mæli, verið til í okkar hluta svörtu Afríku," sagði forsetinn í viðtalinu.
„Þeir hafa aldrei verið ofsóttir eða sætt mismunun, en munurinn á okkur og Vestur-Evrópu er að þar er samkynhneigð hampað eins og hún sé af hinu góða." Þingmaðurinn sem mælti fyrir frumvarpinu sem vakti svo hörð viðbrögð um allan heim fyrir skömmu segist nú vilja leggja það fram aftur í breyttri mynd, þar sem ákvæði um dauðarefsingu við samkynhneigð hafi verið felld út.
Forsetinn sagði aðspurður að ævilangur fangelsisdómur kæmi aðeins til greina fyrir glæpi sem væru „gegn hagsmunum samfélagsins". Hann bætti því við sem dæmi að lífstíðardómur kynni að falla gegn hverjum þeim sem styðji við ráðabrugg um að múta börnum til að verða samkynhneigð.
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur lýst frumvarpinu sem ógeðslegu, en Museveni varar vestræna leiðtoga við því að „fara varlega gagnvart svörtu Afríku" og troða ekki eigin gildum upp á þjóð hans. „Ég borða ekki fisk vegna þess að ég kalla þá snáka. Ég borða ekki kjúkling því ég tel að það komi þér úr jafnvægi. Ég borða ekki svín - ég borða ekki margt af því sem þið borðið en ég held því bara fyrir mig," sagði hann.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 27. janúar 2011, Erlent Baráttumaður fyrir réttindum samkynheigðra myrtur
- Föstudagur, 11. nóvember 2011, Erlent Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir hrottalegt morð
- Sunnudagur, 22. apríl 2012, Erlent Samkynhneigð ill og óguðleg
- Laugardagur, 29. janúar 2011, Erlent Upplausn í jarðarför samkynhneigðs baráttumanns
- Laugardagur, 14. maí 2011, Erlent Umræðum um dauðarefsingu við samkynhneigð frestað
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































