Strauss-Kahn fyrir dóm í mars
Fyrsta fyrirtakan í einkamálinu sem höfðað hefur verið í Bandaríkjunum gegn Dominique Strauss-Kahn hefur nú verið dagsett, og fer fram í Bronx í New York þann 15. mars. Réttarhöldin sjálf hefjast þó ekki strax heldur verður farið yfir rök beggja málsaðila.
Ljóst er því að Strauss-Kahn mun standa í ströngu í réttarsölum í næsta mánuði, því frönsk dómsmálayfirvöld hafa einnig tilkynnt að hann verði kallaður fyrir rannsóknardóm í lok mars vegna ásakana um að hann hafi stutt vændishring rekinn af skipulögðum glæpahópum og átt aðild að fjármálamisferli.
Strauss-Kahn hélt beinustu leið heim til Frakklands eftir að honum var sleppt úr haldi gæsluvarðhaldi í New York í fyrra, en þar tók ekki betra við því hvert hneykslismálið hefur rekið annað tengt vafasamri kynlífshegðan hans.
Eins og kunnugt er féll saksóknari í New York frá ákæru á hendur Strauss-Kahn vegna kynferðisofbeldis á síðasta ári, en konan sem sakar hann um árásina, Nafissatou Diallo, höfðaði í kjölfarið einkamál.
Diallo segir að Strauss-Kahn hafi reynt að nauðga henni á herbergi sínu á Sofitel hótelinu á Manhattan þar sem hún starfaði sem herbergisþerna. Hún krefst þess í einkamálinu að fá greiddar bætur frá Strauss-Kahn, en ekki hefur verið upplýst hversu háar bætur hún fer fram á.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 4. maí 2012, Erlent Nýjar ásakanir gegn Strauss-Kahn
- Mánudagur, 26. mars 2012, Erlent Dómsmáli Strauss-Kahns flýtt
- Miðvikudagur, 28. mars 2012, Erlent Strauss-Kahn fyrir rétti í New York
- Mánudagur, 26. september 2011, Erlent Strauss-Kahn fer fram á frávísun
- Fimmtudagur, 1. desember 2011, Erlent Játar frjálslegt kynlíf
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































