Strauss-Kahn laus síðar í dag
Fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Dominique Strauss-Kahn, verður látinn laus síðar í dag eftir að hafa verið yfirheyrður í tvo daga vegna kynlífsveislna sem hann tók þátt í.
Samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar verður Strauss-Kahn gert að mæta aftur fyrir rannsóknardómara síðar, annað hvort sem vitni eða hann verður ákærður fyrir tengsl við vændissölu og fjársvik.
Strauss-Kahn sagði í dag að hann hefði ekki grunað að konur sem hann hitti í svallveislunum væru vændiskonur þegar þær voru kynntar fyrir honum af yfirmönnum í lögreglunni.
Heimildir AFP herma að þetta hafi komið fram í máli Strauss-Kahn við yfirheyrslur í dag í Lille í Frakklandi. Hann er yfirheyrður vegna tengsla við vændishring og að hafa tekið þátt í misnotkun á peningum fyrirtækis. Hann var einnig yfirheyrður af innra eftirliti frönsku lögreglunnar, IGPN, sem rannsakar málefni aðstoðarlögreglustjóra Lille, Jean-Christophe Lagarde, sem hefur verið ákærður fyrir vændissölu.
Samkvæmt frönskum lögum varðar aðild að vændissölu allt að 20 ára fangelsi og verði hann dæmdur sekur um að hafa hagnast á fjárdrætti gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi, auk sektar.
Lögreglan kvaðst vera að rannsaka hvort Strauss-Kahn hefði vitað að konur, sem skemmtu honum í veislum á veitingastöðum, hótelum og skemmtistöðum í Washington og París og fleiri evrópskum borgum, hefðu verið vændiskonur og greitt hefði verið fyrir þjónustu þeirra. Verði niðurstaðan sú að hann hafi vitað þetta verður rannsakað hvort Strauss-Kahn hafi haft vitneskju um að gestgjafar hans hafi greitt fyrir þjónustuna með fé sem dregið var út úr fyrirtæki sem annar kaupsýslumannanna starfaði fyrir.
Strauss-Kahn hefur neitað því að hann hafi tekið þátt í vændissölu eða fjárdrætti.
Tveir kaupsýslumenn, Fabrice Paszkowski og David Roquet, hafa verið ákærðir vegna málsins. Þeir eru taldir tengjast frönskum og belgískum konum sem stunduðu vændi á Carlton-hótelinu í Lille sem notið hefur mikilla vinsælda meðal kaupsýslumanna og stjórnmálamanna í borginni.
Alls hafa átta menn verið ákærðir í tengslum við „Carlton-málið“, þar á meðal þrír af stjórnendum hótelsins, þekktur lögfræðingur og, eins og áður sagði, aðstoðarlögreglustjóri borgarinnar.
Síðasta kynsvallið er sagt hafa farið fram þegar kaupsýslumennirnir hittu Strauss-Kahn í Washington 11.-13. maí í fyrra, m.a. til að ræða hugsanlegt forsetaframboð hans. Strauss-Kahn var þar til í fyrra álitinn líklegur arftaki Nicolas Sarkozys Frakklandsforseta.
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. október 2011, Erlent Mætti með vændiskonu upp á arminn
- Þriðjudagur, 21. febrúar 2012, Erlent Væntanlega úrskurðaður í gæsluvarðhald
- Þriðjudagur, 21. febrúar 2012, Erlent Strauss-Kahn til yfirheyrslu
- Mánudagur, 16. maí 2011, Erlent Baráttan rétt að hefjast
- Fimmtudagur, 1. desember 2011, Erlent Játar frjálslegt kynlíf
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi





































