Tveggja daga þjóðarsorg í Argentínu
Fjölmargir Argentínumenn leituðu örvæntingarfullir að ástvinum á spítölum Buenos Aires í dag í von um að þeir hefðu lifað af lestarslys í gærkvöldi sem kostaði 50 manns lífið. Hundruð eru slasaðir og hefur tveggja daga þjóðarsorg verið lýst yfir í landinu. Víða má sjá flaggað í hálfa stöng.
Rannsókn er hafin á tildrögum slyssins en farþegar segja að lestarstjórinn, Marcos Antonio Cordoba, hafi átt í erfiðleikum með bremsurnar skömmu áður en slysið átti sér stað. Lestin stöðvaðist seint og fór alveg framhjá einni stoppistöðinni. Svo fór að lestin náði ekki að hægja á sér á síðustu stöðinni og keyrði á fullum krafti á hlið með fyrrgreindum afleiðingum.
Cordoba hefur fimm ára starfsreynslu og þykir hafa staðið sig vel í starfi. Hann liggur á gjörgæsludeild og hefur enn ekki getað gefið lögreglumönnum skýrslu.
Björgunarmönnum hefur verið mikið hrósað fyrir að hafa notað vaselín og olíu til að ná fólki út úr löskuðum vögnunum en fremstu tveir vagnarnir krömdust saman. Marga klukkutíma tók að aðskilja yfir hundrað lifandi og látna sem höggið hafði kramið saman á nokkurra fermetra svæði.
Björgunarmenn sendu hina slösuðu á tólf spítala í Buenos Aires og í öllu uppnáminu voru þúsundir manna óvissir um hvort ættingjar þeirra og vinir hefðu lifað slysið af. Héldu þeir því á spítalana í övæntingarfullri leit. Gagnrýndu margir að nöfn ástvinanna fundust hvorki á lista yfir þá sem lifðu af eða á lista yfir hina látnu.
„Ég er viss um að dóttir mín sé 'Nafn: óþekkt' inni á einhverri slysadeildinni,“ sagði Viviana Acevedo við AP fréttastofuna.
Á Ramos Mejia spítalanum, skammt frá slysstaðnum, var Oscar Cesar Zapiola að leita að 14 ára frænku sinni. „Ég fór á ellefu spítala. Ég byrjaði hér og endaði hér,“ sagði Zapiola. „Ég hef engar upplýsingar. Ég vil ekki þurfa að fara í líkhúsið. Það er síðasti staðurinn sem ég vil fara á.“
Erlent »
Miðvikudagur, 23.5.2012
-
Evruskuldabréf aftur á dagskrá
- Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla
- Hótuðu að halda barninu eftir
- Olía alls ekki að ganga til þurrðar
- Hælisleitendur í hungurverkfalli
- Sprengjukona ekki ákærð
- Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf
- Romney lofar minna atvinnuleysi
- Vill skera upp herör gegn mafíunni
- Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum
- Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan
- Segja Watson fá réttláta meðferð
- Meirihluti Bandaríkjamanna hlynntur hjónabandi samkynhneigðra
-
Hollande: Ekki einkamál Grikkja
- Myrti dóttur sína og bútaði hana niður
- Taldi sig afhöfða geimveru
- Lifði af fall niður Niagara fossana
-
Dæmdur fyrir að aðstoða við leitina að Bin Laden
- Barnaníðingur vanaður í S-Kóreu
Þriðjudagur, 22.5.2012
- Breivik fær tíma til útskýringa
- Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu
- Sagðist vera með sprengju í líkamanum
- Kennarar og nemendur mótmæla
- 14 ára skaut á skólafélaga
- Væri upphafið að endalokum evrunnar
- Ummæli prests vekja reiði
- Gríski harmleikurinn heldur áfram
- Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift
- Neyðarástand á Ítalíu
- Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó
- Kæfðu dóttur sína með plastpoka
- Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn
- Stuðningur eykst við jafnaðarmenn
- Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands
- Mótmæli kveðin niður í Bakú
- Tók 7 ára stúlku í gíslingu
- Reyndi að bjarga bróður sínum frá Breivik
- Mótmæla niðurskurði til menntamála
- „Eins og atriði úr bíómynd“
- Sýrland
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Skuldavandi Grikklands
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 22. febrúar 2012, Erlent Mannskætt lestarslys í Argentínu
- Sunnudagur, 11. mars 2012, Erlent Lestarslys í Taílandi
- Laugardagur, 25. júní 2011, Erlent Lestarslys í Nevada
- Fimmtudagur, 15. mars 2012, Erlent Þjóðarsorg í Belgíu á morgun
- Sunnudagur, 25. desember 2011, Erlent Yfir 100 slasast á flugeldasýningu
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
-
Ásmundur: Búnir að bíða lengi




































