„Einmanalegur dauði" vandamál í Japan
Dauði fjölskyldunnar sem fannst eftir um tvo mánuði í íbúð í Japan hefur vakið umtal á áhyggjur Japana um s.k. „einmanalega dauða", sem eru nægilega algengir í landinu til þess að sérstakt hugtak sé til um fyrirbærið.
Þriggja manna fjölskyldan hafði legið dáin í a.m.k. 2 mánuði í íbúð sinni í borginni Saitama áður en hún uppgötvaðist. Búið var að loka á rafmagn- og gasleiðslur hússins vegna vangreiddra reikninga. Enginn matur var í húsinu, og aðeins nokkrir smáskildingar fundust í fórum fólksins, sem virtist vannært. Það var ekki fyrr en rekstrarfélag byggingarinnar fór að grennslast fyrir um málið sem í ljós kom að hjónin og sonur þeirra á fertugsaldri voru öll látin.
Of stolt til að leita hjálpar?
Í japönskum fjölmiðlum kemur fram að fjölskyldan hafi beðið nágranna sinn um hjálp vegna bágrar stöðu sinar, en verið hafnað og vísað á velferðaryfirvöld. Fjölskyldan gerði það hinsvegar aldrei og hefur sú kenning verið sett fram í fjölmiðlum að þeim hafi þótt það skammarlegt.
Þrátt fyrir að vera þriðja ríkasta land heims eru nokkur dæmi þess frá síðustu árum að japanskir borgarar deyi einir og yfirgefnir og finnist ekki fyrr en löngu síðar. Þetta kallast í japönsku „kodokushi", einmanalegur dauði. Síðast í janúar fundust tvær systur á fimmtugsaldri látnar í óupphitaðri íbúð sinni á eyjunni Hokkaido þar sem voru miklar vetrarhörkur.
Fréttaritarar BBC í Japan segja að málið hafi vakið japanskt samfélag, eitt það ríkasta í heimi, til sjálfsskoðunar um hvort hinir þurfandi týnist í velferðarkerfinu.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. maí 2012, Erlent Óútskýrt andlát njósnara í tösku
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Erlent Fyrrum þræll leitar fjölskyldu sinnar
- Föstudagur, 24. febrúar 2012, Erlent Japönsk fjölskylda lést úr hungri
- Þriðjudagur, 21. febrúar 2012, Erlent Yfirmaður hjá Olympus framdi sjálfsvíg
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Erlent Ævilangt fangelsi fyrir morð
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































