Pyntingar í fangelsum Assads

Frá útför óbreytts borgara sem lést í árásum Sýrlandshers. stækka

Frá útför óbreytts borgara sem lést í árásum Sýrlandshers. Reuters

Hræðilegar pyntingar eru stundaðar í fangelsum í Sýrlandi, einkum á þeim sem hafa verið handteknir vegna þátttöku í mótmælum gegn stjórn landsins. Börn og unglingar sæta pyntingum og ofbeldi og þúsundir hafa flúið til Jórdaníu.

Einn þeirra er 34 ára gamall maður sem kallar sig Abu Zeid, en honum tókst að flýja við illan leik til Jórdaníu. Hann segir að önnur hönd hans hafi verið limlest með lítilli sprengju eftir að hann neitaði að leggjast flatur fyrir framan mynd af Assad Sýrlandsforseta.

„Ég var pyntaður, barinn og mér var gefið raflost í kjallara í 15 daga eftir að ég tók þátt í mótmælum gegn ríkisstjórninni,“ segir Zeid sem nú dvelur á sjúkrahúsi sem er rekið af samtökunum Læknar án landamæra.

„Hersveitir Assads forseta handtóku skólabörn og hentu þeim inn í klefann til mín. Þau voru dauðskelkuð og grétu látlaust. Þá varð ég reiður og ég blótaði Assad og stjórn hans í hugsunarleysi. Verðirnir heyrðu til mín, sóttu mynd af Assad, börðu mig miskunnarlaust og sögðu mér að leggjast flatur fyrir framan myndina. Ég neitaði því og reif myndina í tvennt. Þá sprengdu þeir handlegginn, ég leið út af og vaknaði á sjúkrahúsi.“

Sameinuðu þjóðirnar segja að ríkisstjórn Sýrlands hafi mistekist algerlega að vernda sína eigin þegna. Þúsundir Sýrlendinga hafa flúið land, til Jórdaníu. Flestir skólar í landinu eru lokaðir vegna ástandsins í landinu og hefur mörgum þeirra verið breytt í fangelsi. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja að börn allt niður í 13 ára sæti pyntingum sem skipulagðar séu af ríkisstjórn Assads. Sameinuðu þjóðirnar segja að a.m.k. 400 börn hafi látið lífið í átökunum í landinu og að minnsta kosti jafnmörg séu í haldi þar sem þau séu pyntuð og þeim misþyrmt á kynferðislegan hátt.

Said Heraki er sjötugur og með sykursýki. Hann var neyddur til að þamba mikið af vatni og þegar hann þurfti að kasta af sér vatni var hann afklæddur og gúmmíbandi vafið um eistu hans til að koma í veg fyrir þvaglát.  „Síðan var ég skilinn eftir aleinn, ég hélt að ég myndi springa, sársaukinn var óbærilegur og ég sagði að ég myndi gera hvað sem væri fyrir þá,“ sagði Heraki við fréttamann AFP-fréttastofunnar. Hann segist hafa verið látinn undirrita falsaða játningu um að hafa lagt eld að lögreglustöð og var síðan sleppt úr haldi fyrir skömmu. 

Hann missti tá, þegar fangaverðir settu brennheit kol á fót hans og helltu sjóðandi vatni yfir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Frá mótmælum í Sýrlandi.

Öryggisráðið fordæmir stjórn Sýrlands

Í gær, 21:54 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld ályktun, þar sem sýrlenska ríkisstjórnin er harðlega fordæmd fyir aðild sína að fjöldamorðunum í bænum Houla í Sýrlandi. Ráðið krefst þess að þeir sem beri ábyrgð á ódæðisverkunum verði látnir svara til saka. Meira »
Frá mótmælum í Sýrlandi

Kenna eftirlitsmönnum SÞ um

Í gær, 21:40 Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að fjöldamorðin í bænum Houla í Sýrlandi í gær auki mjög þrýsting á þá eftirlitsmenn SÞ sem eru í landinu. Þeim hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa ekki staðið sig sem skyldi í eftirlitshlutverki sínu. Meira »

Getur ekki útskýrt verknaðinn

Frá vettvangi morðanna.
Í gær, 21:27 Finnski skotmaðurinn, sem myrti tvö ungmenni í bænum Hyvinkää í Finnlandi í fyrrinótt, segist iðrast gjörða sinna en getur enga grein gert fyrir þeim. Meira »

Héldu stúlku sem þræl í átta ár

Í gær, 20:21 Bosnísk hjón héldu þýskri stúlku sem þræl í átta ár, lokuðu hana inni og meinuðu henni að umgangast annað fólk. Stúlkan, sem er 19 ára, er nú undir læknishendi. Meira »

Rússar efast um sekt stjórnarinnar

Frá mótmælum í Sýrlandi.
Í gær, 19:05 Rússnesk yfirvöld segjast efast um að sýrlensk stjórnvöld beri ábyrgð á fjöldamorðunum í bænum Houla í gær, en þar létust 116 manns, þar af fjöldi barna. 300 eru særðir. Meira »

Fimm létust í loftárás

Frá Pakistan.
Í gær, 21:17 Að minnsta kosti fimm pakistanskir uppreisnarmenn létu lífið í loftárás bandaríska hersins sem gerð var skammt frá landamærum Pakistans að Afganistan, í Waziristan-héraði þar sem talibanar og hryðjuverkasamtökin al-Qaeda eru með umfangsmikla starfsemi. Meira »

Þeir sem ekki reykja fá meira frí

Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga.
Í gær, 19:20 Sífellt fleiri atvinnurekendur í Noregi veita þeim starfsmönnum sínum sem ekki reykja aukafrídaga. Heilbrigðisráðherra Noregs, Anne-Grete Strøm-Erichsen, segist styðja tiltækið. Meira »

Danir hafa áhyggjur af spekileka

Í gær, 18:49 Á hverju ári flytja rúmlega 20.000 Danir úr landi til náms eða starfa og sífellt fleiri vel menntaðir Danir kjósa að snúa ekki aftur til síns heima. Flestir þeirra eru verkfræðingar. Meira »

Í facebookstríði við Lagarde

Grikkir eru Christine Lagarde, framkvæmdastjóra AGS, sárreiðir vegna ummæla hennar um skuldavanda Grikklands.
Í gær, 18:29 Grikkir eru Christine Lagarde, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ævareiðir vegna ummæla hennar um að hún velti því fyrir sér hvers vegna þeir væru svo fúsir til að komast hjá því að greiða skatta. Grískur almenningur hefur herjað á Lagarde á samskiptasíðunni Facebook í dag. Meira »

Fundu líkin eftir sjö vikur í snjó

Frá björgunaraðgerðum í Siachen Glacier í Kasmírhéraði í Pakistan.
Í gær, 17:16 Björgunarsveitir í Pakistan komust loksins að herbúðum á Siachen-jökli í hinu fjalllenda Kasmírhéraði, þar sem snjóflóð féll fyrir meira en sjö vikum. Björgunarmennirnir þurftu að grafa göng í gegnum geysiháa snjóskafla með aðstoð stórvirkra vinnuvéla. 140 manns létust í flóðinu. Meira »

Segjast ekki bera ábyrgð myndskeið

Damascus 'not responsible' for Houla massacre
Í gær, 17:37 Sýrlensk stjórnvöld hafna fullyrðingum um að þau beri ábyrgð á dauða rúmlega 90 óbreyttra borgara sem voru myrtir í bænum Houla í gær. Þriðjungur þeirra látnu er börn. Meira »

Var í skóla með fórnarlömbunum

Víða var flaggað í hálfa stöng í Finnlandi í dag vegna morðanna.
Í gær, 16:20 Maðurinn, sem skaut á hóp fólks í bænum Hyvinkää í Finnlandi í fyrrinótt og myrti tvö ungmenni, var kunnugur þeim. Hann gekk í sama skóla og þau tvö sem hann myrti, en var hættur í skóla fyrir nokkru. Meira »

Stokkhólmur, Gautaborg eða Malmö?

Loreen hin sænska sem vann Evróvisjónkeppnina í gær.
Í gær, 16:02 Borgaryfirvöld í Stokkhólmi, Gautaborg og Malmö hafa öll lýst sig reiðubúin til að halda Evróvisjónkeppnina á næsta ári, en hún verður haldin 18. maí. Keppnin var síðast haldin í Svíþjóð fyrir 12 árum og þá var hún í Stokkhólmi, í tónleika- og íþróttahöllinni Globen. Meira »

Sænskur unglingur varð fyrir skoti í Tyrklandi

Frá borginni Antalya í Tyrklandi.
Í gær, 15:23 17 ára sænskur drengur var skotinn í bakið síðastliðinn þriðjudag þegar hann var á ferðalagi í Tyrklandi með fjölskyldu sinni. Hann lá á sólbekk við sundlaug þegar hann varð fyrir skotinu og var í kjölfarið fluttur í skyndi á sjúkrahús í borginni Antalya þar sem fjölskyldan var í fríi og undirgekkst uppskurð sem tókst vel. Meira »

Lady Gaga aflýsir tónleikum í Jakarta

Tónleikum Lady Gaga mótmælt í Jakarta.
Í gær, 13:18 Lady Gaga hefur aflýst fyrirhuguðum tónleikum í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, í kjölfar hótana öfgafullra íslamista um að öryggi hennar og tónleikagesta yrði ógnað færu þeir fram. Meira »

Vandi skekur Vatíkanið

Úr Vatikaninu, Péturskirkjan.
Í gær, 15:55 Páfagarður reynir enn að finna út hver standi á bak við umfangsmikinn leka á upplýsingum úr Vatíkaninu undanfarið. Trúnaðarskjölum um viðkvæm mál er varða kirkjuna hefur markvisst verið lekið í fjölmiðla og hafa menn nú þegar verið handteknir án þess að vitað sé með nokkurri vissu hver sé sökudólgurinn. Meira »

Hvetur til frelsisstríðs

Mótmælt í Sýrlandi.
Í gær, 15:12 Burhan Ghalioun, formaður Sýrlenska þjóðarráðsins, hvatti í dag til „frelsisstríðs“ gegn ríkisstjórn landsins, sem yrði háð þar til Sameinuðu þjóðirnar grípa til aðgerða. SÞ hefur heimild til hernaðarumsvifa vegna ákvæða svokallaðs sjöunda kafla. Meira »

Blóðbaðsins minnst

Frá Torgi hins himneska friðar, Tianamen torgi, í Peking í dag.
Í gær, 12:48 Hundruð lýðræðissinna fylktu liði í Hong Kong í dag til að minnast þess að 23 ár eru senn liðin frá því mótmæli stúdenta á Torgi hins himneska friðar í Peking voru brotin á bak aftur af stjórnvöldum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
Frí auglýsing NÝR BÍLASÖLUVEFUR
Bílaþjónusta.is bíður öllum að auglýsa bíla mótorhjól hjólhýsi og vagna frítt, s...
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
Gönguskór
Fóðraðir gönguskór til sölu nr. 49-50 Upplýsingar í síma 8935005...
 
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...