Rauði krossinn flytur fólk frá Homs
Gervihnattamynd sýnir elda loga í borginni Homs í Sýrlandi eftir að sprengjum var varpað á olíuleiðslu. Leiðslan liggur um hverfið Baba Amr. Reuters
Rauði krossinn hóf í dag brottflutning kvenna, barna og særðra frá borginni Homs í Sýrlandi, þar sem umsátursástand hefur ríkt í tvær vikur. Sjúkrabílum var ekið inn í Baba Amr úthverfið, þar sem tíðar sprengjuárásir hafa verið gerðar, eftir að samningar náðust um tímabundið vopnahlé á meðan.
Meðal þeirra sem biðu björgunar voru tveir alvarlega særðir blaðamenn sem sendu frá sér myndskeið með hjálparbeiðni fyrr í vikunni. Alþjóðaráð Rauða krossins hefur ekki gefið upp hvort þeir séu í hópi þeirra sem fluttir verða burt.
Tilkynnt var um brottflutninginn í kjölfar upphafs allsherjaffundar „Vina Sýrlands" í Túnis, þar sem m.a. var þrýst á um neyðaraðstoð. Fulltrúa 70 landa sátu fundinn og var niðurstaðan sú að krefjast þess að sýrlensk stjórnvöld láti samstundis af ofbeldinu í landinu, leyfi neyðaraðstoð og flutning neyðargagna inn á átakasvæðin.
Einni hétu fundarmenn því að skella frekari refsiaðgerðum á Sýrland verði ekkert að gert, þar á meðal ferðabann, frystingu eigna, frost á olíuviðskipti og slit diplómatískra samskipta. Þá verði komið í veg fyrir vopnaflutning til landsins.
Mótmælendur í Sýrlandi segja að yfir 7.000 manns hafi fallið á síðustu 11 mánuðum, þar af 90 í Homs í gær. Rauði krossinn ræddi bæði við fulltrúa yfirvalda og mótmælenda þar í dag um að fá tækifæri til að fara inn í úthverfin. Um 20 konur og börn hafa verið flutt burt auk 7 særðra manna.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 25. febrúar 2012, Erlent 41 lét lífið í Sýrlandi
- Mánudagur, 13. febrúar 2012, Erlent Árásir í sólarupprás í Homs
- Sunnudagur, 26. febrúar 2012, Erlent Lést þegar hún sótti skóna sína
- Laugardagur, 3. mars 2012, Erlent Gríðarlegt mannfall í Homs
- Þriðjudagur, 27. mars 2012, Erlent Skotið af byssu nærri Assad
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































