Verði endurkjörinn sem forseti leiðtogaráðs ESB
Gert er ráð fyrir því að Herman van Rompuy, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, verði endurkjörinn í embætti á næstu ráðstefnu ráðsins en kjörtímabil hans rennur út í maí á þessu ári. Verði van Rompuy endurkjörinn verður um að ræða annað kjörtímabil hans.
Fréttaveitan AP hefur þetta eftir ónafngreindum dönskum embættismanni en Danir fara með forsætið innan Evrópusambandið fram í lok júní. Fram kemur að forsætisráðherra Danmerkur, Helle Thorning-Schmidt, hafi þegar ráðfært sig við aðra leiðtoga ríkja sambandsins um málið.
Van Rompuy er fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu og var kjörinn í embætti upphaflega samhliða gildistöku Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins sem tók gildi 1. desember árið 2009.
Þess má geta að kjörtímabil forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins er tvö og hálft ár og er heimilt að endurkjósa sitjandi forseta einu sinni. Í leiðtogaráðinu sitja leiðtogar ríkja sambandsins og kjósa þeir forseta ráðsins.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Erlent Van Rompuy situr áfram
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Erlent Staðráðið í að tryggja stöðugleika
- Föstudagur, 2. mars 2012, Erlent Ekki efni í embættismann hjá ESB
- Miðvikudagur, 25. apríl 2012, Erlent Gagnrýnir lýðskrumara og öfgamenn
- Þriðjudagur, 28. febrúar 2012, Erlent Þjóðþingin orðin að ESB-stofnunum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































