Reiði vegna lestarslyss
Mikil reiði er meðal aðstandenda þeirra sem létust í lestarslysi í úthverfi höfuðborgar Argentínu, Buenos Aires, á miðvikudag. 51 lést í slysinu og yfir sjö hundruð farþegar slösuðust. Lenti fólki saman við lögreglu á lestarstöðinni en aðstandendur vilja fá skýr svör um hvað olli slysinu.
En það eru ekki bara ættingjar sem eru ósáttir við fá svör við spurningum sínum því almenningur í Argentínu er langþreyttur á ástandi lestakerfisins. Óeirðarlögregla handtók nokkra á lestarstöðinni í gærkvöldi en æstur múgurinn kveikti í skiltum og öllu lauslegu á lestarstöðinni.
Farþegalestin var full af fólki þegar hún ók á um 20 km hraða inn á lestarstöðina. Sjónarvottar sem stóðu á lestarpallinum lýstu árekstrinum eins og sprengingu, hvellurinn hefði verið gríðarlegur og afleiðingarnar hryllilegar. Tugir manna sátu fastir í sundurkrömdum lestarvögnunum eftir áreksturinn.
Líklegt þykir að slysið muni hafa langan eftirmála fyrir dómstólum. Argentínska ríkið hefur sagst munu kæra fyrirtækið Trenes de Buenos Aires sem rekur lestarlínuna. Haft hefur verið eftir starfsmönnum lestarkerfisins að viðhald þess og endurnýjun hafi verið vanrækt síðan það var einkavætt.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 22. febrúar 2012, Erlent Mannskætt lestarslys í Argentínu
- Miðvikudagur, 22. febrúar 2012, Erlent Að minnsta kosti 49 látnir
- Laugardagur, 7. apríl 2012, Erlent Langferðabíll hrapaði niður í gljúfur
- Þriðjudagur, 13. september 2011, Erlent Rúta rakst á tvær lestir
- Miðvikudagur, 22. febrúar 2012, Erlent Keyrði á fullum hraða á vegg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































