Chavez fer til Kúbu í meðferð

Forseti Venesúela, Hugo Chavez, er á leið til Kúbu í frekari geislameðferð vegna krabbameins. Chavez var skorinn upp í síðasta mánuði á Kúbu vegna krabbameinsæxlis í mjöðm.

Hann greindist fyrst með krabbamein í fyrra og í október tilkynnti Chavez að hann væri laus við meinið en svo virðist sem það hafi tekið sig upp að nýju.

 Chavez verður á Kúbu á sama tíma og Benedikt XVI. páfi en von er á páfanum til Havana á morgun. Forsetinn sagði í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi að krabbameinsmeðferðinni miðaði vel og honum liði vel.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert