Mannskæð átök í Sýrlandi

Sýrlenskir skriðdrekar stjórnarhersins nálægt Homs. stækka

Sýrlenskir skriðdrekar stjórnarhersins nálægt Homs. Reuters

Að minnsta kosti 105 Sýrlendingar voru drepnir í átökum víða í Sýrlandi í dag, degi áður en friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna á að ganga í gildi.

Í hópi hinna föllnu eru 23 liðsmenn öryggissveita sem halda tryggð við Bashar al-Assad forseta og átta uppreisnarmenn. Allir hinir voru almennir borgarar, samkvæmt upplýsingum eftirlitsstofnunarinnar Syrian Observatory for Human Rights.

Minnst 35 almennir borgarar, þeirra á meðal konur og börn, voru drepnir í sprengjuárás á þorpið Latamna í Hama-héraði. Í þeim hópi voru fimmtán yngri en 18 ára og auk þess átta konur.

Herþyrla gerði árás á nágrannaþorpið Kfar Zeita þar sem stjórnarhermenn börðust við uppreisnarmenn á jörðu niðri.

Í Aleppo-héraði voru 27 almennir borgarar drepnir í sprengjuárás á bæinn Tal Rifaat en þar voru hörð átök milli stjórnarhermanna og uppreisnarmanna.

Uppreisnarmenn náðu á sitt vald varðstöð í þorpinu Salamah, í Aleppo-héraði, við landamæri Tyrklands, og drápu sex öryggis- og tollverði. Þá voru níu lögreglumenn drepnir í átökum nærri Sukari í borginni Aleppo.

Opinbera fréttastofan SANA sagði að 10 lögreglumenn og óbreyttir borgarar hefðu fallið og ellefu aðrir særst í átökunum þegar skotið var á öryggissveitir í mótmælaaðgerðum í Sukari.

Auk þeirra föllnu særðust margir í átökum dagsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Sláttuvél
Sláttuvél til sölu, upplýsingar í síma 893-5005...
ÚTSALA-Swarovski skartgrip Augnakonfekt
Glæsilegar kristalsljósakrónur, veggljós, glös og postulín. Swarovski skartg...
Rafstöðvar - varaaflstöðvar.
10 og 20 Kw einfasa 230 volt ,Yanmar dísil + Stamford UK ,rafalar á fínu verð...
12 feta Utah fellihýsi, 2007
Sólarsella Fortjald Eldavél Heitt vatn/Kalt vatn Vaskur Ísskápur Fatahengi...
 
Starfsmaður á lager
Lager/útkeyrsla
Gæðabakstur, Ömmubakstur ehf. auglýs...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Vantar aðstoðar- skólastjóra í Grunn...
Útboð bol 03

Útboð BOL-03 Varaaflstöð í Bolungar...
Bílar ríkiskaup

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...