Erfingi konungs skaut sig í fótinn

Juan Carlos, Spánarkonungur. stækka

Juan Carlos, Spánarkonungur. Reuters

Þrettán ára drengur, barnabarn Juan Carlos, Spánarkonungs, skaut sjálfan sig í fótinn í gærdag þegar hann æfði sig ásamt föður sínum að skjóta af haglabyssu.

Gert var að meiðslum drengsins, Felipe Marichalar Bornon,  á Santa Barbara-spítalanum í Soria. Hann var í kjölfarið fluttur til Madrídar þar sem sár hans voru hreinsuð. Hann er elsta barnabarn konungsins, sonur Jaime de Marichalar, sem skildi við Elenu prinsessu árið 2009.

„Drengurinn skaut sjálfan sig með lítilli .36 kalíbera haglabyssu á verönd fyrir utan húsið og meiddist á hægri fæti“

Sofia drottning heimsótti barnið í morgun. Meiðsli þess eru ekki alvarleg.

Konungsfjölskyldan upplifði slíkt slys síðast í páskaviku hinn 29. mars árið 1956.

Juan Carlos konungur var viðstaddur þegar yngri bróðir hans, Alfonso, var skotinn til bana í slysi á aðsetri fjölskyldunnar í Estoril í Portúgal. Bræðurnir voru að sögn að leik með skammbyssu.

Heimildarmenn spænska dagblaðsins El País innan spænsku lögreglunnar segja að börnum undir fjórtán ára sé ekki heimilt að handleika skotvopn undir nokkrum kringumstæðum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
BÍLAVIÐGERÐIR
Bílaviðgerðir á betra verði þjónustum all...
Gunnarsholts´s Schäfer
Væntanlegt got undan frábærum foreldrum Gunnarsholts Vanessu og ISCH SchH3 BH AD...
Travel Lite Pallhýsi
Ferð með Pallhýsi er engu lík Mjög vel útbúin og ódýr. Syningarhús hjá Útile...
Stórar kjarrivaxnar útsýnislóðir stutt frá Reykjavík
Lóðirnar eru í kjarrivaxinni brekku sem veit mót suðri. Frábært útsýni. Heitt va...
 
Hlutastörf í sumar
Önnur störf
Mynd af auglýsingu ...
Hjúkrunarfræðingar
Heilbrigðisþjónusta
Hjúkrunarheimili Hafnarfirð...
15158 - 14969 - 14879 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í ...