Öryggisráðið þarf að grípa inn í

Kofi Annan reyndi að koma á vopnahléi í Sýrlandi. stækka

Kofi Annan reyndi að koma á vopnahléi í Sýrlandi. Martial Trezzini

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ræddu saman í síma í dag um ástandið í Sýrlandi. Þau eru sammála um að öryggisráð Sameinuðu þjóðarinnar þurfi að grípa inn í ástandið með traustari hætti.

Átökin í Sýrlandi hafa staðið í 13 mánuði og kostað a.m.k. 9.000 manns lífið. Á miðnætti rann út frestur til að koma á vopnahléi sem byggt er á friðarsamkomulagi sem Kofi Annan lagði fram. Stjórnvöld í Sýrlandi samþykktu samkomulagið, en fátt bendir til að vopnahléi verði komið á.

Obama og Merkel eru sammála um að stjórnvöld í Sýrlandi hafi ekki staðið við skilmála friðarsamkomulagsins og að þau hafi haldið áfram árásum á óbreytta borgara í landinu. Því sé þörf fyrir frekari afskipti öryggisráðsins af málefnum Sýrlands.

Kofi Annan hefur í dag verið í Íran og átt viðræður við íranska ráðamenn um ástandið í Sýrlandi. Íran hefur stutt dyggilega við bakið á Assad forseta Sýrlands. Annan vonast eftir að Íranar geti haft áhrif á Assad og stjórn hans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Hyundai Santa fe 2003" beinsk,ekinn 169 þkm.verð 890 þúsund.
Hyundai Santa fe 2003" beinsk,ekinn 170 þkm. nagladekk skoðaður 2014,fallegur og...
MERCEDES BENZ 230 SLK ÁRG 1997
Mercedes Benz 230 SLK árg. 1997 Toppurinn fer í skottið. Ekinn...
Golf 2004 - LÆKKAÐ VERÐ
TIL SÖLU VW GOLF 4/2004 (NÝTT ÚTLIT), EK. AÐEINS 99 Þ. KM, BEINSK., SVARTUR, SPO...
CHERVOLET SPARK 2012
Chevrolet SPARK 2012 , 1200cc, Dýrari gerðin, ekinn 7 þú...
 
Kveðjusamkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Sunnudaginn 16. júní kl. 16:30 v...
Organisti / kórstjóri
Listir
Organisti og kórstjóri Laus er s...
Upplýsingafulltrúi
Augl-/almannatengsl
Upplýsingafulltrúi Helstu verkefni:...
Organisti / kórstjóri
Listir
Organisti/kórstjóri Norðfjarðarkirkja, N...