Tveir landgönguliðar létust
Staðfest er að tveir bandarískir landgönguliðar létu lífið og tveir til viðbótar særðust alvarlega þegar bandarísk herþyrla af gerðinni MV-22 Osprey hrapaði í gær í suðurhluta Marokkó. Þyrlan var við reglubundnar heræfingar er slysið átti sér stað.
Í tilkynningu frá Bandaríkjaher kemur fram að þyrlan hafi verið við æfingar, misst flughæð og hrapað innan skilgreinds æfingarsvæðis. Um borð í þyrlunni, sem tilheyrði herskipinu USS Iwo Jima, voru fjórir liðsmenn bandaríska landgönguliðsins.
Flogið var með hina særðu á sjúkrahús í Rabat höfuðborg landsins og má búast við að þeir verði fluttir á bandarískt hersjúkrahús.
Yfir 1.000 bandarískir landgönguliðar og um 200 sjóliðar, her- og flugmenn taka þátt í heræfingunni í Marokkó sem hófst fyrr í þessum mánuði. Um er að ræða reglubundna æfingu hersveita Bandaríkjamanna og Marokkóbúa.






