Aukin þrýstingur á Hvíta-Rússland

Stjórnarandstæðingurinn Dmitry Bondarenko ræðir við fjölmiðla eftir að honum var sleppt úr fangelsi í Minsk ... stækka

Stjórnarandstæðingurinn Dmitry Bondarenko ræðir við fjölmiðla eftir að honum var sleppt úr fangelsi í Minsk þann 15. apríl 2012. Reuters

Bandaríkin þrýstu í dag á Alexander Lúkasjenkó, forseta Hvíta-Rússlands að sleppa lausum öllum pólitískum föngum sem sitja í fangelsum landsins. Tveimur stjórnarandstæðingum var sleppt úr fangelsi í gær en Bandaríkin segja ekki nóg að gert.

Einræðisstjórnin í Hvíta-Rússlandi sleppti í gær lausum Andrei Sannikov, sem bauð sig fram til forseta á móti Lúkasjenkó. Kosningastjóra hans Dmitry Bondarenko, sem einnig hefur setið í fangelsi, var sleppt á sama tíma, eftir þrýsting frá Evrópusambandinu.

„Þetta eru mikilvæg skref," sagði í yfirlýsingu bandaríska utanríkisráðuneytisins í dag. "Við hvetjum ríkisstjórn Hvíta-Rússlands til að láta samstundis og skilyrðislaust lausa alla pólitíska fanga og til að tryggja að þeir fái að nýju að njóta mannréttinda."

Viðbrögð Bandaríkjanna við aðgerðum Hvíta-Rússlands eru samhljóma viðbrögðum Evrópusambandsins, sem hefur aukið þrýsting sinn á Hvíta-Rússland undanfarið, m.a. með því að frysta eigur 29 þarlendra fyrirtækja, auk þess að frysta bankareikninga og setja ferðabanna á 12 einstaklinga.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
TOYOTA LC 120 GX DIESEL 2004/08 - TILBOÐ!
Toyota Land Cruiser 120 GX 2004/08, sjálfskiptur, diesel, ekinn aðeins 103þ. km....
Knaus 450 Sport - vel með farið
Til sölu hjólhýsi Knaus 450 sport, árg. 2005, sjálfvirk miðstöð, rafmagn, sólars...
Lítið ekið á góðu verði
Hyusung GV650 650 cc 80 hp bein innsp. vatnskælt ekið ca 6000 km fæst á 500.0...
Póstkort
Langar þig að fá póstkort sent einhvers staðar úr heiminum? Þá er www.postcrossi...
 
15454 gufuskálar til leigu - ríkiskaup

Óskað er eftir tilboðum í leigu á h...
Aðalskipulag helgafellssveitar

Auglýsing um tillögu að Aðalskipulagi H...
Aðalskipulag helgafellssveitar

Auglýsing um tillögu að Aðalskipulagi H...
Uppboð - sýslumaðurinn í reykjavík

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....