Berlusconi hélt „villtar veislur“

Vitni fyrir rétti í máli gegn Silvio Berlusconi á Ítalíu sagði í dag að Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, héldi „villtar veislur“ á setri sínu fyrir utan Mílanó, þar á meðal kjöltudanssýningar sem nefndust „Bunga Bunga“.

Imane Fadil, fyrirsæta, sagði að í fyrsta skipti sem hún fór í slíka veislu hefði Berlusconi fengið henni 2.000 evrur í hendur og sagt: „Ekki móðgast.“

Fadil sagði jafnframt að það kvöld hefði hún séð tvær ungar konur í nunnubúningum; í svörtum kyrtlum, með hvítar skuplur og með krossa um hálsinn, að dansa og fækka fötum fyrir framan forsætisráðherrann.

Önnur kvennanna var Nicole Minetti, sem situr fyrir hönd flokks Berlusconi í sveitarstjórn í Mílanó.

Fadil hélt því jafnframt að þær konur sem gistu í húsinu hefðu fengið meira fé greitt fyrir kynlíf og þær hefðu jafnframt gert allt sem í þeirra valdi stóð til að fá að gista. Hún sagðist hafa heyrt að Berlusconi hefði borgað fyrir kynmök með í það minnsta tveimur konum í veislum sínum.

Ítalskir fjölmiðlar greindu einnig frá því að Fadil hefði sagt að hún hefði sætt þrýstingi um að snúa aftur á setur Berlusconi þegar réttarhöldin voru þegar hafin.

„Maður stöðvaði fyrir utan húsið mitt og lét mig frá órekjanlegan síma til að skipuleggja heimsókn í húsið. En mig langaði ekki til þess,“ sagði hún í réttarsal í Mílanó.

Berlusconi er gefið að sök að hafa haft kynmök við vændiskonu undir lögaldri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Til sölu kerra, nýsmíði
750 kg. kerra, 250X125 cm. galvanhúðuð, klædd með áli, riffluð álbretti og olíus...
33x12.50R15LT
Hjólbarðar til sölu. 4 dekk + álfelgur. Verð kr. 150 þús. Uppl. síma 896-1339...
Hundaskóli Heimsenda Hunda
Nýtt Grunnnámskeið byrjar þann 27 maí, fyrir alla hunda frá 4 mánaða aldri. Ára...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar,...
 
15354 sprengiefnageymslu - ríkiskaup

Tilboð óskast í sprengiefnageymsluá...
Hársnyrtir óskast
Hárgreiðsla/Snyrting
Hársnyrtir óskast Hárgreiðslustofan Aþen...
Málþing um kjalveg

Málþing um Kjalveg Málþingið „Endurbæ...
Sýslumaðurinn í reykjavík- framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....