Einn dómenda sagður vanhæfur

Frá héraðsdómshúsinu í Ósló.
Frá héraðsdómshúsinu í Ósló. AFP

Annar dagur réttarhaldanna yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik hófst í morgun með því að Wenche Elizabeth Arntzen dómari í málinu vakti máls á athugasemd eins meðdómendanna, Thomas Indrebø, í athugasemdakerfi netmiðils, þar sem hann sagði að Breivik ætti ekkert annað skilið en dauðarefsingu.

Indrebø skrifaði athugasemdina daginn eftir voðaverk Breiviks. Hann stóð upp í réttarsal og viðurkenndi að hafa skrifað athugasemdina þann 23. júlí í fyrra. Tveir meðdómendur sögðust telja að hann ætti að víkja, þar sem hann væri óhæfur til setu vegna ummælanna.

Gert hefur verið hálftíma hlé, þar sem þessi staða verður rædd. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert