Hakkarar vörpuðu nektarmynd í þingsalinn

Frá Bangkok í Tælandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. stækka

Frá Bangkok í Tælandi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Reuters

Gera þurfti hlé á þingfundi í tælenska þjóðþinginu í dag þegar tölvuhakkarar brutust inn í kerfi þingsins og vörpuðu flennistórri mynd af hálfnakinni konu upp á tjald í salnum á meðan umræðum stóð.

Umræðum á þinginu er varpað upp á tjald á rauntíma en í miðri ræðu eins þingmannanna var útsendingin reglulega trufluð með nærmynd nærmynd af hálfnakinni konu í ögrandi stellingum. Hlé var gert á fundinum og slökkt á myndvörpunum að ósk þingmannsins.

Verið er að rannsaka uppruna myndanna en forseti þingsins, Somsak Kiatsuranon, segir að talið sé að utanaðkomandi hakkarar beri ábyrgðina. Málið vakti enn meiri athygli fyrir þær sakir að einn þingmannanna í salnum tók mynd með símanum sínum af þingmanninum í ræðupúlti með netkarmyndina fyrir aftan hann og sendi hana á dagblaðið Bangkok Post.

Eftir stutt hlé héldu umræðu þingsins áfram, en þær snerust um breytingar á stjórnarskrá landsins. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka
Mazda CX-9 Jeppi 7 manna 2008 - Öll skipti
Nýskráður 06.2008, Sjálfskiptur, 7 manna og rúmgóður, Hægt að fella aukasætin ni...
SKEMMTILEGT ATVINNUTÆKIFÆRI
Til sölu verslun með fatnað, fylgihluti og skartgripi í góðu húsnæði í verslanam...
Dunlop 225/60-18
Lítið slitin. Tvö eru með 6 mm munstri og tvö með 7 mm. Ný dekk eru með 8mm. Ver...
NÝIR LITIR - NÝ SNIÐ
NÝIR LITIR - NÝ SNIÐ Teg. 31100 - Vel fylltur í 70-85B,...
 
Resepsjonist/sekretær
Skrifstofustörf
LEDIG STILLING SOM RESEPSJONIST/SEKRETÆ...
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensáskirkju Sunnu...
Verkefnastjóri
Iðnaðarmenn
Verkefnastjóri Samtök fiskvinnslust...
Samkoma -kefas
Félagsstarf
Mánudaginn 20. maí kl. 20 verður t...