Ísbjörn skotinn í Suður-Grænlandi

Bæjarbúar í Narsaq hópuðust niður á bryggju til að skoða dýrið. stækka

Bæjarbúar í Narsaq hópuðust niður á bryggju til að skoða dýrið. Ljósmynd/Sermitsiaq.ag

Stærðarinnar ísbjörn var skotinn í bænum Narsaq í Suður-Grænlandi í dag. Talsverður mannfjöldi safnaðist saman á bryggju bæjarins til að virða dýrið fyrir sér og var skrokkur þess hengdur upp á krana. 

Það var veiðimaðurinn Richardt Efraimsen sem rakst á björninn þegar hann var á fiskveiðum úti fyrir höfðanum Nuugaarsuk. Ísbjörninn var á sundi í sjónum en Efraimsen beið þar til hann skreið upp á nærliggjandi ísjaka og drap hann með einu skoti. Þetta kemur fram á fréttavefnum Sermitsiaq.ag. Hann dró svo björninn að bryggju í Narsaq þar sem hann var hífður upp með krana og íbúar gátu virt hann fyrir sér. 

Má skjóta fjóra birni á ári

Fram kemur á Sermitsiaq að fréttin um ísbjörninn hafði kvisast út um bæinn og hafði því stór hluti bæjarbúa safnast saman á bryggjunni, þar á meðal flest skólabörnin í Narsaq. Síðar var einnig farið í vettvangsferð með leikskólabörn og íbúa dvalarheimilis aldraðra í bænum til að skoða dýrið. 

Um er að ræða birnu, á að giska fjögurra ára gamla. Þegar þeir sem það vildu höfðu skoðað skepnuna var birnan flegin. Það sem af er ári hafa þrír ísbirnir verið skotnir á þessum slóðum.. Kvótinn hljóðar hinsvegar upp á fjóra birni á ári og mega íbúar Suður-Grænlands því aðeins skjóta einn ísbjörn til. 

Myndir af ísbirninum má sjá hér. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Óska eftir vél úr Toyota Avensis eða Celica (1800)
Mig vantar 1800 Toyota vél. Bæði koma til greina 1800 vél úr Avensis (eftir 200...
Leðursófi 3ja sæta
Til sölu Leður sófi frá Valhúsgögnum vel með farinn. Uppl. S.8999292 leifi13@int...
RÝMINGARSALA
Rýmingarsala á vörubíladekkjum 13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk 1...
Ford Explorer Sport Track LTD 2007
Ek. 80þúskm V8 4.6L sjsk, leður, tölva, 4x4, Webasto forhitari, loftdæla, Allur...
 
15469 breytingar á strandvegi 52 - ríkiskaup

15469 - Breytingar á Strandvegi 52,...
Upplýsingafulltrúi alcoa
Augl-/almannatengsl
ÍSLENSKA SIA.IS ALC 64262 05/13 ?????...
Rafmagns- verk- eða tæknifræðingur
Sérfræðistörf
RAFMAGNS- VERK- EÐA TÆKNIFRÆÐINGUR V...
Flokksstjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Bláskógabyggð Vinnuskóli Bláskógabyggð...