Norður-Kórea hótar hefndum

Kim Jong-Un, forseti Norður-Kóreu. stækka

Kim Jong-Un, forseti Norður-Kóreu. AFP

Stjórnvöld í Norður-Kóreu vara við hefndaraðgerðum eftir að Bandaríkjamenn létu af matvælaaðstoð til landsins í kjölfar þess að umdeildri eldflaug var skotið upp í síðustu viku. Óttast er að Norður-Kóreumenn munu halda vopnatilraunum sínum áfram og færa sig upp á skaftið í þeim efnum.

Norður-Kóresk stjórnvöld segjast ekki lengur bundin af tvíhliða samkomulagi við Bandaríkjamenn um að gera hlé á vopnatilraunum og tilraunum til auðgunar úrans eftir að Bandaríkjamenn létu af aðstoðinni. „Við erum því í stakk búin til að grípa til hefndaraðgerða, án nokkurra skuldbindinga vegna þessa samkomulags,“ segir í yfirlýsingu sem stjórnvöldin sendu frá sér seint í gærkvöldi. Þar eru bandarísk stjórnvöld sökuð um fjandsemi.

Að auki láta Norður-Kóreumenn sér fátt um finnast þó að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi fordæmt misheppnað eldflaugaskot þeirra og boði frekari refsiaðgerðir gegn landinu.

Suður-kóreskir stjórnmálaskýrendur segjast búast við frekari vopnatilraunum Norður-Kóreu.

Kínverjar, sem löngum hafa verið dyggir bandamenn Norður-Kóreumanna, hafa aflýst samkomulagi við Norður-Kóreu um heimsendingu norður-kóreska flóttamanna sem þangað hafa flúið vegna þess að þarlend stjórnvöld voru ekki látin vita fyrirfram af eldflaugaskotinu. Hingað til hafa Kínverjar verið ötulir við að senda flóttafólkið aftur til síns heima, þrátt fyrir að vera meðvitaðir um að þeirra bíði refsing við afhæfinu.

Norður-Kóresk stjórnvöld staðhæfa að eldflaugaskotið hafi ekki verið vopnatilraun, heldur misheppnuð tilraun til að koma gervihnetti á loft. Eldflaugaskotið var liður í miklum hátíðahöldum vegna þess að öld var liðin frá fæðingu Kim Il-Sung, fyrsta forseta landsins og afa núverandi forseta Kim Jong-Un.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
TRAKTORDEKK
Traktorsdekk - rýmingarsala 11.2-24 kr. 29.900 14.9-24 kr. 29.900 13.6 -2...
33x12.50R15LT
Hjólbarðar til sölu. 4 dekk + álfelgur. Verð kr. 150 þús. Uppl. síma 896-1339...
VERTU Í FORMI !
SLAKANDI NUDD HRESSIR OG KÆTIR Í KULDANUM. ENGIN BIÐSTOFA EÐA UMGANGUR. ...
GOLF - LÆKKAÐ VERÐ
VW GOLF 4/2004 (NÝTT ÚTLIT), EK. AÐEINS 99 Þ. KM, BEINSK., SVARTUR, SPOILER, SUM...
 
Orkuveitan - rennibekkur fyrir virkjanir

Samningskaup Orkuveita Reykjavíkur ó...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Fjáröflunarsamkoma - kristniboðssamandið
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Fjáröflunarsamkoma ...
Sýslumaðurinn í keflavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....