Þrír leyniþjónustumenn missa vinnuna

Mark Sullivan yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar. stækka

Mark Sullivan yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar. Reuters

Þrír starfsmenn  bandarísku leyniþjónustunnar missa vinnuna vegna vændishneykslis sem upp komst eftir för þeirra með Barack Obama Bandaríkjaforseta til Kólumbíu. Í bréfi tveggja þingmanna til yfirmanns leyniþjónustunnar, Mark Sullivan, kemur fram að starfsmennirnir kunni að hafa farið óvarlega með viðkvæmar öryggisupplýsingar.


Einn hátt settur fulltrúi mun fara á snemmbúin eftirlaun vegna málsins, öðrum hefur verið tilkynnt að honum verði sagt upp á sá þriðji hefur nú þegar sagt af sér, að sögn talsmanns leyniþjónustunnar. Rannsókn málsinsstendur enn yfir og 8 starfsmenn til viðbótar eru til skoðunar. M.a. verða þeir yfirheyrðir með hjálp lygamælis. 

Alls hafa 11 fulltrúar leyniþjónustunnar og a.m.k. 10 hermenn verið rannsakaðir vegna hneykslisins, sem komst að sögn upp þegar ein 20 vændiskvenna sem mennirnir buðu heim á hótel hafði samband við lögreglu vegna þess að hún fékk ekki greitt uppsett verð. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Þetta eina sanna!
Glencairn viskí glasið er viðurkennt sem "The Official" viskí glas. Glasið kost...
FLAGGSTANGIR & FLÖGG. FRÁBÆRT VERÐ.
6 metra vandaðar ál flaggstangir á aðeins kr. 26.800- og vandaðir sterkir íslen...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar,...
Fallegar lóðir í Hvalfirði
Sumarhúsalóðir innarlega í Hvalfirði til sölu. Frábært útsýni yfir sjó og land. ...
 
Fjárfestir

Fasteignafélag óskar eftir fjárfesti(um)...
Aðalfundur skipasmíðastöðvar njarðvíkur

Aðalfundur Aðalfundur Skipasmíðastöð...
Samkoma hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Samkoma á hvítasunnudegi kl.17 Ka...
15411 sigtún 2 - ríkiskaup

Tilboð óskast í fasteignina Sigtún ...