Forsætisráðherra Hollands, Mark Rutte, er mættur á fund drottningar landsins, Beatrix, þar sem hann mun væntanlega óska eftir lausn frá embætti fyrir ríkisstjórn sína.
Rutte kom á fund hennar klukkan 14 að staðartíma, kl. 12 að íslenskum tíma.
Ekki er vitað hversu langur fundur þeirra verður en ástæða afsagnarinnar er að honum mistókst að ná samkomulagi um fyrirhugaðan niðurskurð hins opinbera á næstunni.