216 milljónir veikjast árlega af malaríu

Reuters

Um það bil annar hver jarðarbúi er í áhættuhóp vegna malaríu. Á hverju ári veikjast um 216 milljónir manna af sjúkdómnum og talið er að 655 þúsund látist. Fólk í fátækustu löndunum er í mestri hættu.

Alþjóðlegi malaríudagurinn hefur verið haldinn 25. apríl frá 2007 og yfirskrift dagsins er að þessu sinni - Viðhöldum árangri, björgum mannslífum: Fjárfestum í malaríu (Sustain Gains, Save Lives: Invest in Malaria).

Á síðasta áratug hefur malaríutilvikum fækkað umtalsvert, um þriðjung í Afríku. Í sumum löndum innan álfunnar er árangurinn enn glæsilegri, 35 ríki af 53 náð 50% að fækka tilvikum sjúkdómsins um 50% með tilheyrandi fækkun í tíðni barnadauða, að því er fram kemur í vefriti um þróunarmál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert